Árleg minningarguðsþjónusta vegna þeirra sem látist hafa úr alnæmi hér á landi verður haldin, sunnudaginn 20. maí næstkomandi. Kveikt verður á kertum til að minnast þeirra er látist hafa, einu kerti fyrir hvern einstakling sem við minnumst.
Að vanda fer athöfnin fram í Fríkirkjunni í Reykjavík og hefst kl. 14.00.
Þess má geta að minningarstund þessi er alþjóðleg og heitir hún á ensku Candlelight Memorial Day. http://www.candlelightmemorial.org/
Sr. Sigfinnur Þorleifsson leiðir guðsþjónustuna.
Formaður Hiv-Íslands, Svavar G. Jónsson, flytur ávarp.
Hugleiðingu flytur Sigríður Rún Tryggvadóttir guðfræðingur.
Ritningarlestur verður í höndum félagsmanna.
Tónlist: Margrét J. Pálmadóttir mætir með fagran hóp söngfugla, Ragnhildur Ísleifsdóttir söngkona flytur tvö lög, Natthawat Voramool syngur eitt lag.
Boðið verður til kaffihlaðborðs í Safnaðarheimili Fríkirkjunnar að lokinni messu.
f.h. Hiv–Íslands
Einar Þór Jónsson
framkvæmdastjóri