[English below] Dagana 3. til 6. febrúar sótti Bergrún Andradóttir, skrifstofustjóri, námskeið á vegum Evrópuráðsins í Strassborg. Á námskeiðinu voru 32 þátttakendur, sem saman stóð af starfsfólki félagasamtaka, stofnana og þjálfurum frá Evrópuráðinu. Áhersla var að þjálfa þátttakendur um hvernig skuli sporna og bregðast við hatursorðræðu. Verkfæri og forvarnir gegn hatursorðræðu, t.a.m. vitundarvakning og fræðsla voru kynntar og einnig sóttu þátttakendur smiðjur um hvernig skuli nota gagnræðu (e. counter narrative), aðra frásögn (e. alternative narrative) og fræðslu um mannréttindi (e. human rights education) til þess að takast á við hatursorðræðu.
Á námskeiðinu var ítarleg grein gerð fyrir fræðilegum skilgreiningum, til þess að aðstoða þátttakendur við að skilja upptök hatursorðræðu ásamt fræðslu um stefnumótandi hugtakaramma frá Evrópuráðinu. Námskeiðið gekk einnig út á það að þátttakendur þurftu að takast á við áhrif hatursorðræðu um ólíka hópa þar sem áhersla var á hagnýta gagnræðu, aðra frásögn og notkun mannréttindafræðslu sem verkfæri til að koma í veg fyrir og berjast gegn hatursorðræðu. Gögn og lærdómur af námskeiðinu munu gagnast Samtökunum ’78 vel við að byggja ofan á þann góða grunn sem gagnræðunámskeiðið okkar er en einnig sem verkfæri í vinnu innan skrifstofunnar við vitundarvakningu um mannréttindi, skaðleg áhrif hatursorðræðu sem og styrkjandi áhrif gagnræðu.
Námskeiðið var einn af lykilviðburðum sameiginlegs verkefnis ESB og Evrópuráðsins sem ber heitið„Aukin þekking og geta borgarasamtaka til að vinna gegn hatursorðræðu á netinu“, sem miðar að því að bæta samstarf og samhæfingu félagasamtaka, opinberra yfirvalda og annarra sem og efla viðbrögð við hatursorðræðu á netinu með formlegum og óformlegum hætti. Fjórir þátttakendur frá styrktarþjóðum EES- og Noregsstyrkja fengu einnig tækifæri til að taka þátt í gegnum verkefnadrifið framtak (MDI) „Að efla viðbrögð margra hagsmunaaðila við hatursorðræðu og hatursglæpum“.
Sjá frétt Evrópuráðsins um námskeiðið

From 3 to 6 February, Bergrún Andradóttir, Office Manager, attended a course organised by the Council of Europe in Strasbourg. The course had 32 participants, consisting of staff from civil society organisations, institutions and trainers from the Council of Europe. The course focused on training participants in how to prevent and respond to hate speech. Tools and preventative measures against hate speech, such as awareness-raising and education, were introduced, as well as workshops on how to use counter-narratives, alternative narratives and human rights education to tackle hate speech.
The course provided a detailed account of theoretical definitions in order to understand the origins of hate speech. In addition, participants were educated on the strategic conceptual framework on hate speech and its impact, which is developed by the Council of Europe. The training also involved dealing with the effects of hate speech, with an emphasis on the practical use of counter-narratives, alternative narratives and the use of human rights education as a tool to prevent and combat hate speech. The materials and lessons from the course will be useful for Samtökin ’78 in building on the good foundation that our counter-narrative course provides, but also as a tool in the office’s work on raising awareness about hate speech, human rights and the impact of counter-narratives.
The course was one of the key events of a joint EU and Council of Europe project entitled “Increasing civil society organisations’ knowledge and capacity to counter hate speech online”, which aims to improve cooperation and coordination among multiple stakeholders, including civil society organisations, public authorities and others, as well as to strengthen their response to online hate speech through formal and informal means. Four participants from the beneficiary countries of the EEA and Norway Grants also had the opportunity to participate through the Mandate-Driven Initiative (MDI) “Enhancing multi-stakeholder responses to hate speech and hate crime”.
Council of Europe: Trainers equipped with tools to counter hate speech


