Ný stjórn Samtakanna '78 var valin á aðalfundi félagsins í gær, laugardaginn 5. mars 2015. Þá var kosið í trúnaðarráð, um félagslega skoðunarmenn reikninga og um hagsmunaaðild tveggja félaga, HIN – Hinsegin Norðurland og BDSM á Íslandi. Hagsmunaaðild beggja félaga var samþykkt en aðild BDSM Ísland hefur reynst umdeild. Nýkjörin stjórn vinnur nú að yfirlýsingu varðandi þetta mál og er hennar að vænta í fyrramálið, mánudaginn 7. mars 2016, ásamt fundargerð aðalfundar.
Eftirfarandi skipa stjórn félagsins starfsárið 2016-17:
- Formaður: Hilmar Hildar Magnúsarson
- Varaformaður: Ásthildur Gunnarsdóttir
- Gjaldkeri: Heiður Friðbjörnsdóttir (ein í framboði og því sjáfkjörin)
- Ritari: Júlía Margrét Einarsdóttir (ein í framboði og því sjálfkjörin)
- Alþjóðafulltrúi: Kitty Anderson (ein í framboði og því sjálfkjörin)
- Meðstjórnandi: Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir
- Meðstjórnandi: Unnsteinn Jóhannsson
Eftirfarandi voru kjörin í trúnaðarráð starfsárið 2016-17:
- Auður Emilsdóttir
- Benedikt Traustason
- Daníel Arnarsson
- Hafsteinn Himinljómi Sverrisson
- Kjartan Þór Ingason
- María Helga Guðmundsdóttir
- Óskar Steinn Ómarsson
- Sigurður Þorri Gunnarsson
- Sólveig Rós
- Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir
Þá voru félagslegir skoðunarmenn reikninga kjörnir:
- Sigurjón Guðmundsson
- Sverrir Jónsson