Félagsráðgjöf Samtakanna ’78 hefur verið starfrækt í nokkur ár en hjá félaginu starfa tveir félagsráðgjafar, þær Anni Haugen og Guðbjörg Ottósdóttir. Ráðgjöfin en mikilvæg þjónusta við þá sem eru að „koma út“ sem samkynhneigðir einstaklingar en ekki síður fyrir foreldra og aðstandendur sem leita svara við þeim ótal spurningum sem vakna þegar einhver nákominn kemur út úr skápnum. Félagsráðgjafarnir hafa mikla reynslu af því að ræða við samkynhneigða en boðið er upp á 1-3 viðtöl. Ef þörf er talin á fleiri viðtölum eða meðferð er bent á aðra sérfræðinga utan félagsins.
Guðbjörg Óttósdóttur er annar félagsráðgjafa Samtakanna og spurðum við hana hvaða ástæður liggi að baki heimsóknum ráðgjafanna
„Flestir af þeim konum og körlum sem leita til okkar koma vegna óöryggis með eigin kynhneigð. Þessir einstaklingar hafa yfirleitt ekki leitað til Samtakann ‘78 áður. Sumir eru foreldrar barna og eru í hjónabandi eða sambúð. Til okkar leita einnig foreldrar og aðstandendur þar á meðal makar. Nokkrir einstaklingar hafa komið vegna óöryggis með eigið kyn. Nú svo hafa leitað samkynhneigðir einstaklingar vegna annarra mála, t.d. vegna sambandserfiðleika. Fram til ársins 2006 leituðu til okkar töluvert af lesbískum pörum sem voru að fara að eignast börn eftir að hafa gengið í gegnum tæknifrjóvgun í Danmörku. Flestir af þeim sem koma í ráðgjöf koma í 2-3 viðtöl.“
Þurfum að ná betur til foreldra samkynhneigðra
„Það er langt því frá einsleitur hópur sem leitar til félagsráðgjafa og bakgrunnur eða félagsleg staða einstaklinganna er mismunandi. Þá virðast foreldrar vera í sívaxandi mæli opnari fyrir því að leita til ráðgjafa ekki síst til að sækja sér upplýsingar og fræðslu.”
Er einhver einn hópur sem sækir ráðgjöf meira en annar?
„Þetta er fólk alls staðar að á landinu, flestir frá Reykjavík og nágrannasveitarfélögunum.“
Margir þeirra sem leita til ráðgjafa hafa leitað annað áður
Aðspurð hvort það sé algengt að þeir sem óski eftir viðtali við ráðgjafa á vegum félagsins hafi leitað annað áður segir Guðbjörg svo vera. Guðbjörg bendir á að sumir hafi verið í samtalsmeðferð hjá sálfræðingum eða geðlæknum, jafnvel án þess að nokkurn tímann hafi verið rætt um kynhneigð. Aðrir hafa rætt við námsráðgjafa eða heimilislækni og verið bent á að leita til ráðgjafa Samtakanna ‘78.
Sjáið þið einhverja þróun varðandi ástæður þess að leitað er til ykkar?
leita gjarnan til fagaðila sem búa yfir sérþekkingu í þessum málaflokki.“
Þeir sem vilja panta tíma hjá ráðgjöfum geta haft samband við skrifstofu Samtakanna ‘78 eða sent tölvupóst á netfangið skrifstofa@samtokin78.is. Ráðgjöfin stendur öllum til boða og er ókeypis.