Þann 4. maí skrifuðu Samtökin ‘78 undir samstarfssamning við Menntavísindasvið Háskóla Íslands en samningurinn mun efla fræðslu og ráðgjöf á sviðinu tengt kynja-, jafnréttis- og hinseginfræðum. Samningurinn kveður á um tveggja klst. árlegan samráðsfund með með kennurum fagstétta og fræðslu inn í sérstök námskeið eftir því sem við á. Þá munu allir grunnnemar Menntavísindasviðs sitja tveggja kennslustunda fræðslu frá Samtökunum ‘78 um kyntjáningu, -hneigð, -einkenni og kynvitund. Einnig munu Samtökin vera nemendafélögum innan handar hvað varðar allar ráðleggingar sem snúa að hinsegin málefnum. Samningurinn gildir í þrjú ár og er ljóst að hann mun bæði auka samstarf HÍ og Samtakanna ‘78 og bæta hinsegin fræðslu innan greina Menntavísindasviðs.
Mynd með tilkynningunni á Kristinn Pálsson, ljósmyndari.