Blaklið KMk hefur starfað af krafti undanfarin 5 ár við góðan orðstýr. Þennan veturinn æfir liðið í íþróttahúsi Selásskóla, Selásbraut, Árbæ. Eru æfingar á miðvikudögum frá kl. 18:50 – 19:40. Þjálfari liðsins er enginn annar en sjálfur Marinov Todor en í blakliðinu eru lesbíur og vinkonur þeirra á öllum aldri. Það er ekki skilyrði að kunna blak enda kemur kunnáttan fljótt. Nýjar konur eru alltaf hjartanlega velkomnar og vel tekið á móti þeim. Áhugasamar geta haft samband við Fríðu 866-8246) eða Kristínu (898-3060) til að fá nánari upplýsingar. Einnig er hægt að senda tölvupóst á þær stöllur með tölvupóstiá: fridaagnars@isl.is eða kristin@hexa.is
Góður andi er í blakliðinu og mikið félagslíf og er blakið því góð leið til að kynnast konum og eiga skemmtilegt og gefandi félagslíf – með og án bolta.
-Blaklið KMK