Tilkynningar Hinsegin dagar nálgast og hinn 6. ágúst förum við í gleðigöngu niður Laugaveg á útihátíð í Lækjargötu.
Opnun á gönguverkstæði Hinsegin daga verður þriðjudaginn 19. júlí klukkan 20:00. Verkstæðið er staðsett á sama stað og í fyrra, í húsnæði Kling og Bank fyrir ofan Hlemm (Gengið er inn Stakkholts megin). Farið verður yfir allt sem við kemur göngunni og atriðum í henni. Veitingar verða í boði og allir eru hjartanlega velkomnir!
Atriðum í gleðigöngunni hefur fjölgað ár frá ári og mörg hver hafa verið einstaklega glæsileg. Til þess að setja upp gott atriði er mikilvægt að hugsa málin með fyrirvara. Góð atriði þurfa ekki að kosta mikla peninga. Gott ímyndunarafl og liðsstyrkur vina og vandamanna dugar oftast nær. Á verkstæði Hinsegin daga geta allir sem eru að setja saman atriði saumað og smíðað og nýtt sér það skraut sem er á boðstólum hverju sinni. Þau sem geta lagt til verkfæri, saumavélar og svo framvegis, vinsamlegast hafið samband við göngustjóra.
Þátttakendur sem ætla að vera með formleg atriði í göngunni verða að tilkynna það til göngustjóra sem allra fyrst. Göngustjórar í ár eru Búbba (s. 865 3390) og Katrín (s. 867 2399).
-Hinsegin dagar í Reykjavík 2005