KMK stendur fyrir fjölskylduvænni ferð á Hítarvatn frá föstudeginum 4. júlí til sunnudags 6. júlí. Verð á fjölskyldu er 500 kr. á nóttina, hvort sem gist er í skála eða í tjaldi. Hítarvatn er við veg númer 593, 46 km vestan Borgarness.
SUMARFERÐ KMK 4. – 6. JÚLÍ: HÍTARVATN 2008!
KMK stendur fyrir fjölskylduvænni ferð á Hítarvatn frá föstudeginum 4. júlí til sunnudags 6. júlí. Verð á fjölskyldu er 500 kr. á nóttina, hvort sem gist er í skála eða í tjaldi. Hítarvatn er við veg númer 593, 46 km vestan Borgarness.
Hítarvatna skálinn verður opinn fyrir KMK á föstudagskvöldið og munu stelpurnar hafa allt húsnæðið fyrir sig, eða um 20 svefnpláss. Á laugardaginn mun félagið deila leitarmannaskálanum með öðrum gestum skálans og verða þá með 10 svefnpláss. Konur eru hvattar til að koma með tjöld og tjalda á svæðinu þar sem pláss í skálanum er að fyllast. Skráning á kmk@kmk.is.
Boðið verður uppá ókeypis veiðikennslu fyrir þau sem vilja. Veiðileyfið í ánni er 2,500 kr. fyrir daginn.
Þetta er tilvalið tækifæri til að hitta skemmtilegar konur og fjölskyldur þeirra og eyða helginni saman.
Nánari upplýsingar á www.kmk.is/ og www.myspace.com/konurmedkonum. Hér er hægt að nálgast upplýsingar um Hítarvatn www.nat.is/veidi/hitarvatn.htm.