Samtökin ´78 bjóða upp á hinsegin Samtakapartý á Café Oliver laugardagskvöldið 16. febrúar. Húsið opnað kl. 23:30 – tvíeykið DJ Þórir og DJ Skjöldur halda uppi stuði fram á nótt.
Drottningin og kóngurinn Georg og Halla himintungl taka á móti gestum og bjóða upp á upp óborganlegt konunglegt uppistand á miðnætti!
Fimmtíu félagar í Samtökunum ´78 fá einn frían drykk til kl. 01 og má nálgast frímiðana á opnu húsi í Samtökunum ´78 mánudags- og fimmtudagskvöldið 11. og 14. febrúar.
Mætum öll hýr á brá og styðjum þannig félagið!
Aðgangur er ókeypis!
-Samtökin ´78