Tilkynningar Laugardagskvöldið 10. september verður slegið upp risa GAY balli í Þjóðleikhúskjallaranum.
Bresku plötusnúðarnir DJ Hudson, DJ Adam og DJ Marky sjá um að halda uppi fjörinu. Þeir eru staddir hér á landi í boði Gayice vefsins og hlakka til að skemmta íslenskum hommum og lesbíum.
Ballið byrjar kl. 23:30 og stendur fram eftir nóttu.
Aðgangseyrir 700 kr. fyrir meðlimi í Samtökunum ´78 og FSS, en 1000 kr. fyrir aðra.
Ekki missa af þessum einstaka viðburði – láttu sjá þig!
Gayice.is