Áramótaball Samtakanna ´78 verður í ár haldið á LÍDÓ, Hallveigarstíg 1. Húsið opnað klukkan eitt-núll-núll á nýjársnótt. DJ SKJÖLDUR heldur uppi meira fjöri en áður hefur þekkst í Húsi iðnaðarins – og þótt miklu víðar væri leitað….!
LÍDÓ – HALLVEIGARSTÍG 1
Eftir miðnætti á gamlárskvöld
Húsið er opnað kl. 01:00
DJ SKJÖLDUR spilar á þessum nýja og glæsilega stað! ÞETTA VERÐUR SKO BRJÁLAÐ….!
Forsala aðgöngumiða er á bókasafni félagsins á morgun, laugardag, frá kl. 13 til 17 sem og á sunnudaginn frá kl. 13 til 15. Það eru því að verða síðustu forvöð að festa kaup á miða í forsölu eða greiða félagsgjald næsta árs og fá ballmiða í kaupbæti! Þau sem greiða fullt félagsgjald næsta árs fyrir áramót fá slíkan glaðning með!
Verð miða:
Til félagsfólks 2006: 1500 kr. við innganginn, 1300 kr. í forsölu
Til utanfélagsfólks: 2000 kr. við innganginn, 1800 kr. í forsölu.
LÍDÓ er nýtt nafn á þeim stað sem áður hét Versalir. Þessi glæsilegi salur er í kjallaranum í Húsi iðnaðarins á horni Ingólfsstrætis og Hallveigarstígs, gengið inn frá Hallveigarstíg.
–Samtökin ´78