Skip to main content
Fréttir

Samtökin '78 styrkja lokaverkefni við Háskóla Íslands

By 12. desember, 2005No Comments

Samtökin ’78 veita styrk árið 2006 til eins eða fleiri lokaverkefna við Háskóla Íslands. Styrkurinn er ætlaður nemendum sem vinna að lokaritgerðum til BA- eða MA-prófs (eða annarra sambærilegra prófa). Umsóknarfrestur rennur út 1. febrúar 2006.

Samtökin ’78 veita styrk árið 2006 til eins eða fleiri lokaverkefna við Háskóla Íslands. Styrkurinn er ætlaður nemendum sem vinna að lokaritgerðum til BA- eða MA-prófs (eða annarra sambærilegra prófa). Umsóknarfrestur rennur út 1. febrúar 2006

Markmið styrkveitingarinnar er að efla rannsóknir og fræðastarf sem lúta að lífsskilyrðum og menningu samkynhneigðra á Íslandi, t.d. á sviði félagsvísinda, hugvísinda, heilbrigðisfræða, lögfræði, guðfræði eða hagfræði.

Heildarstyrkupphæðin er 100.000 krónur sem heimilt er að skipta á milli verkefna ef ástæða þykir til. Styrkþega stendur einnig til boða þriggja mánaða vinnuaðstaða í húsnæði Samtakanna ’78 og afnot af bókasafni félagsins.

Þriggja manna nefnd, skipuð af stjórn Samtakanna ’78, fjallar um umsóknirnar og gerir tillögur um veitingu styrkja til stjórnar félagsins. Í greinargerð með umsókn skal lýsa markmiði viðkomandi rannsóknar, hagnýtu gildi hennar og þeim fræðilegu aðferðum sem umsækjandi hyggst beita. Tilgreina skal leiðbeinanda umsækjanda og æskilegt er að með fylgi umsögn hans um hæfni nemdanda til verksins sem sótt er um. Umsóknir skal senda til Samtakanna ’78, pósthólf 1262, 121 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2006.

Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Samtakanna ´78 á skrifstofutíma. Sími 552 7878.

Leave a Reply