Árleg minningarguðsþjónusta vegna þeirra sem látist hafa úr alnæmi hér á landi verður haldin sunnudaginn 25. maí næstkomandi í Fríkirkjunni í Reykjavík. Kveikt verður á kertum til minningar um þá sem látist hafa, einu kerti fyrir hvern einstakling sem við minnumst.
Árleg minningarguðsþjónusta vegna þeirra sem látist hafa úr alnæmi hér á landi verður haldin sunnudaginn 25. maí næstkomandi. Kveikt verður á kertum til að minnast þeirra er látist hafa, einu kerti fyrir hvern einstakling sem við minnumst.
Að vanda fer athöfnin fram í Fríkirkjunni í Reykjavík og hefst kl. 14.00.
Þess má geta að minningarstund þessi er alþjóðleg og heitir hún á ensku Candlelight Memorial Day.
Séra Hjörtur Magni Jóhannesson leiðir guðsþjónustuna.
Formaður HIV-Ísland, Gunnlaugur I. Grétarsson, flytur ávarp.
Tónlist: Söngdívan Margrét Pálmadóttir mætir með söngfugla sína, þau munu gleðja gesti og leiða söng.
Boðið verður upp á veitingar í Safnaðarheimili Fríkirkjunnar að lokinni messu.
Mætum vel og stundvíslega!
HIV–Ísland
alnæmissamtökin á Íslandi