Tilkynningar Samkynhneigðir foreldrar hittast á fundi miðvikudaginn 28. febrúar kl. 20:30 í Regnbogasal Samtakanna ´78 á Laugavegi 3.
Eigum saman notalega fræðslu- og samverustund, eflum kynnin og styrkjum samheldnina.
Við hittumst annað hvert miðvikudagskvöld yfir veturinn. Fyrsta laugardag í mánuði milli 13-15 er síðan fjölskyldukaffihús í Regnbogasalnum þar sem við hittumst með börnum okkar og gefum þeim tækifæri til að kynnast.
Nýir félagar velkomnir.