Laugardaginn 8. desember kl. 20 bætist nýr hýr staður við skemmtanaflóru Reykjavíkurborgar. Ber hann nafnið BLACK og er til húsa við Lækjargötu 6b (áður Litli ljóti andarunginn). Á opnunarkvöldinu spila DJ Eva María og DJ Birna og ætlar staðurinn að styrkja Samtökin ´78 um 100 kr. af hverjum seldum bjór þetta kvöld. Hvetjum við alla samkynhneigða, tvíkynhneigða og vini þeirra til þess að fjölmenna!
BLACK verður opinn kl. 18 – 01 sunnudaga til fimmtudaga en kl. 18 – 04 um helgar. Lögð er mikil áhersa á danstónlist, Eurovision, disko og salin, og auðvitað allt það nýjasta.
-Black