Samtökin ´78 auglýsa lausa til umsóknar stöðu fræðslufulltrúa félagsins.
Um er að ræða 50% starf með sveigjanlegum vinnutíma.
Hæfniskröfur eru:
-Stúdentspróf skilyrði
-Háskólapróf æskilegt
-Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
-Frumkvæði
-Ábyrgðarkennd
-Jákvæðni
-Mikil færni í mannlegum samskiptum
Starfslýsing:
Starfið felst meðal annars í mótun stefnu í fræðslumálum félagsins til lengri tíma, markmiðasetning, nýsköpun, framkvæmd fræðslu og eftirfylgni í samráði við stjórn félagsins og framkvæmdastjóra
Upplýsingar um starfið veitir framkvæmdastjóri Samtakanna ´78 í síma 552-7878 eða í gegnum skrifstofa@samtokin78.is“>skrifstofa@samtokin78.is
Umsóknir skulu sendar á skrifstofa@samtokin78.is“>skrifstofa@samtokin78.is
Umsóknarfrestur er til og með 21. september 2012