FréttirTilkynning

Stjórn Samtakanna ’78 endurkjörin á aðalfundi

By 6. mars, 2026No Comments

Aðalfundi Samtakanna ’78 lauk á áttunda tímanum föstudaginn 6. mars.

Aðalfundi var stýrt af Guðmundi Inga Guðbrandssyni, fv. ráðherra en fundinn sátu tæplega 50 félagar.

Hefðbundin aðalfundarstörf voru á dagskrá fundarins, auk þess sem ný stefna stjórnar var kynnt fundargestum og hlaut dynjandi lófatak.

Bjarndís Helga Tómasdóttir formaður Samtakanna ’78 var ein í kjöri til formanns og var því sjálfkjörin.

Fimm voru í framboði til stjórnar til tveggja ára, þar af þrjú sem sátu í fráfarandi stjórn Samtakanna ’78. Þau þrjú voru endurkjörin af meirihluta kjósenda, en kosið var rafrænni kosningu og  tók kjörskrá til alls félagatals.

Stjórn Samtakanna ’78 árið 2026 er því sem hér segir:

Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður
Hannes Sasi Pálsson
Hrönn Svansdóttir
Jóhannes Þór Skúlason
Leifur Örn Gunnarsson
Sveinn Kjartansson
og Vera Illugadóttir

Nokkrar lagabreytingatillögur lágu fyrir fundinum. Fundurinn samþykkti að kjör formanns verði nú til tveggja ára í senn og að félagaráð skipi fimm til tíu manns. Aðrar lagabreytingatillögur voru felldar.

Í takti við nýja lagabreytingartillögu um stækkað Félagaráð fór kjör fram á milli ellefu frambjóðenda til félagaráðs. Tíu voru kjörin og er Félagaráð 2026 því skipað sem hér segir:

Anna Björg Kjartansdóttir (Hún)
Jón Ingvi Ingimundarson (Hann)
Kristín Rós Birgisdóttir (Hún)
Þórarinn Snorri Sigurgeirsson (Hann)
Anna Katrín Guðdísardóttir (Hún)
Ragnar Pálsson (Hann)
Arndís Björk Marínós (hán)
Sigríður Örp Elínborgar Arnarsdóttir (hún)
Jón Hjalti Eiríksson (hann)
Margrét Á Jóhannsdóttir (hún/hán)

Stjórn og starfsfólk þakkar félögum fyrir frábæra þátttöku á skemmtilegum Aðalfundi 2026.