Samtökin ’78 vinna eftir félagslögum sem þau sjálf setja sér. Stundum eru félagslög kölluð samþykktir. Félagslögin eru rædd á aðalfundum
Síðast breytt á aðalfundi 2024
1. Heiti og hlutverk
1.1. Félagið heitir Samtökin ‘78 – Félag hinsegin fólks á Íslandi, og hefur aðsetur í Reykjavík. Ensk þýðing félagsheitisins er Samtökin ‘78 – The National Queer Organization of Iceland.
1.2. Markmið félagsins er að hinsegin fólk verði sýnilegt og viðurkennt og njóti fyllstu réttinda í íslensku samfélagi.
1.3. Markmiðum sínum hyggst félagið einkum ná með því að skapa hinsegin fólki félagslegan og menningarlegan vettvang og styrkja þannig sjálfsvitund þess, samkennd og samstöðu um sérkenni sín.
að vinna að baráttumálum hinsegin fólks, svo og fræðslu um reynslu þess og sérkenni, eftir þeim leiðum sem árangursríkastar þykja hverju sinni svo sem á vettvangi löggjafarvalds, í opinberu fræðslukerfi og í fjölmiðlum.
að eiga samstarf við sambærileg samtök, hópa og áhugafólk hérlendis og erlendis sem stefna að sömu markmiðum; styðja önnur félagasamtök, sem vinna að mannréttindum, og afla stuðnings þeirra.
2. Félagsaðild – réttindi og skyldur
2.1. Félagi getur hver sá gerst sem vill styðja félagið og vinna að markmiðum þess.
2.2. Þeir einir teljast gildir félagar sem greitt hafa félagsgjöld. Gildir félagar geta fengið félagsskírteini sem gildir almanaksárið. Félagsfólki ber að tilkynna úrsögn úr félaginu skriflega til stjórnar. Félagi sem ekki hefur greitt félagsgjöld í 5 ár samfellt telst hafa skráð sig úr félaginu.
2.3. Stjórnin ber ábyrgð á félagaskrá sem einungis er til afnota fyrir stjórn og starfsfólk félagsins og eru þeir bundnir þagnarskyldu um hana. Einu sinni á ári er félagaskrá keyrð við Þjóðskrá til að uppfæra heimilisföng einungis. Skal sá þriðji aðili sem sér um þá keyrslu skrifa undir þagnarskyldu.
2.4. Félög tengd hagsmunum Samtakanna ’78 geta óskað eftir því að tengjast félaginu. Stjórninni er skylt að leggja slíka umsókn fyrir aðalfund og geta hennar í fundarboði. Til samþykktar á slíkri aðild þarf einfaldan meirihluta atkvæða á aðalfundi. Hagsmunafélög skulu hafa eigin kennitölu, sjálfstæðan fjárhag og koma fram opinberlega í eigin nafni en ekki nafni Samtakanna ’78. Ef hagsmunafélag gerist brotlegt við siðareglur eða gengur gegn markmiðum Samtakanna ‘78 skal málið skoðað af stjórn með þeim möguleika að vísa hagsmunafélaginu frá á næsta félags- eða aðalfundi.
2.5. Allir félagar geta stofnað starfshópa um málefni og áhugamál sín, að því gefnu að tilgangur þeirra brjóti ekki í bága við markmið félagsins. Þó er ekki hægt að stofna starfshópa um ákveðin stöðugildi, starfsfólk eða einstaka aðila. Tilkynna ber stofnun hóps skriflega til stjórnar, enda eigi talsmenn þeirra alla jafnan fulltrúa með málfrelsi og tillögurétt á stjórnarfundum þegar fjallað er um málefni sem þeim tengjast. Rísi ágreiningur um stofnun og starfsemi hópa skal skjóta málinu til félagsfundar. Hópar skila árlega starfsskýrslu til stjórnar og geta sótt um styrki til hennar vegna starfsemi sinnar.
3. Aðalfundur
3.1. Aðalfundur fer með æðsta ákvörðunarvald félagsins. Hann skal halda í marsmánuði ár hvert. Dagsetningu fundarins skal auglýsa á vefsíðu félagsins og með tölvupósti eigi síðar en 15. janúar. Til fundarins skal svo boða með auglýsingu í útvarpi, á vefsíðu félagsins, með tölvupósti (þegar kostur er á) og samfélagsmiðlum með minnst tveggja vikna fyrirvara. Rétt til fundarsetu hafa einungis félagar með gilt félagsskírteini.
3.2. Að hausti skipar félagsfundur þriggja manna kjörnefnd. Nefndin skal lýsa eftir framboðum og tilnefningum, og vinna að því að framboð berist til kjörs stjórnar, félagaráðs og félagslegra skoðunarmanna reikninga. Kjörnefnd skal leitast við að tryggja að jafnræði ríki hvað snertir m.a. aldur og kyn í hópi frambjóðenda. Kjörnefnd setur sér skriflegar verklagsreglur og ber ábyrgð á framkvæmd kosninga á aðalfundi.
3.3. Framboðsfrestur til stjórnar, félagaráðs og skoðunarmanna reikninga rennur út þremur vikum fyrir aðalfund. Framboðum skal skilað skriflega til kjörnefndar og tilgreina varaframboð ef við á. Öll fyrirliggjandi framboð skulu kynnt á vefsíðu félagsins. Kjörnefnd getur framlengt framboðsfrest ef svo ber undir.
3.4. Kosningar fara fram í þrennu lagi í þessari röð: 1) kjör formanns til eins árs; 2) kjör þriggja einstaklinga í stjórn til tveggja ára; 3) kjör fimm einstaklinga í sæti í félagaráði til eins ár; 4) kjör tveggja skoðunarmanna reikninga. Nú nær frambjóðandi ekki kjöri í tilsett embætti og tekur hann þá þátt í kjöri skv. varaframboði sínu. Ekki er hægt að sitja nema í einu kjörnu embætti í einu. Bjóði stjórnarmeðlimur á fyrra ári kjörtímabils síns sig fram í annað embætti, skal afsögn úr fyrra embætti taka gildi um leið og viðkomandi nær kjöri.
3.5. Nú segir stjórnarmeðlimur af sér á fyrra ári kjörtímabils síns og skipar félagaráð nýjan stjórnarmeðlim í hans stað skv. 4.6 gr. Skal þá kjörið í umrætt sæti í stjórn á næsta aðalfundi til eins árs.
3.6. Dagskrá aðalfundar er:
Skipan fundarstýris og fundarritara
Lögmæti aðalfundar staðfest
Ársskýrsla fyrra starfsárs
Áritaðir reikningar fyrra árs kynntir og bornir upp til samþykktar
Fjárhagsáætlun ársins lögð fram
Laga- og stefnuskrárbreytingar
Kjör til formanns
Kjör til stjórnar
Kjör í félagaráð
Kjör skoðunarmanna reikninga
Afgreiðsla umsókna um hagsmunaaðild
Önnur mál
3.7. Kjörnefnd getur ákveðið að kosningar á aðalfundi fari fram rafrænt. Mun kjörnefnd þá setja sér og kynna í aðalfundarboði sérstakar verklagsreglur um framkvæmd rafrænna kosninga. Í verklagsreglunum skal kveðið á um hvenær kjörskrá lokar og tímamörk rafrænnar atkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðsla getur ekki hafist fyrr en kjörskrá hefur verið lokað.
3.8. Kjörnefnd tekur við utankjörfundaratkvæðum frá félögum með gilt félagsskírteini til kjörs formanns, stjórnar og félagaráðs frá því að kjörskrá hefur verið lokað þar til aðalfundur hefst.
3.9. Aðalfundur telst lögmætur hafi til hans verið boðað með lögmætum hætti og hið minnsta 15 félagsmenn sæki hann. Aðalfundi skal stjórnað samkvæmt almennum fundarsköpum.
3.10. Komi í ljós formgalli á aðalfundi eða boðun hans, skal boðað til fundarins að nýju án tafar. Að auki getur stjórn boðað aukaaðalfund hvenær árs sem er, þyki henni tilefni til. Skal þá auglýsa dagsetningu nýs aðalfundar með minnst sex vikna fyrirvara og boða til hans skriflega með minnst tveggja vikna fyrirvara. Opnað skal að nýju fyrir framboð til trúnaðarstarfa skv. 3.3. gr. og innsendingu lagabreytingatillagna skv. 8.1 gr.
4. Stjórn
4.1. Stjórn samanstendur af formanni og 6 stjórnarmeðlimum. Stjórnarmeðlimir skipta með sér hlutverkum varaformanns, ritara, gjaldkera og þriggja meðstjórnenda.
4.2. Stjórnin fer með umboð félagsins og ákvörðunarvald næst aðalfundi og félagsfundi og kemur fram fyrir hönd þess. Stjórn ræður framkvæmdastýri sem ber ábyrgð á starfsmannahaldi og daglegum rekstri.
4.3. Formaður er oddviti stjórnar og stýrir fundum hennar. Í samráði við stjórn ber formaðurábyrgð á að starfsemi félagsins fari samkvæmt lögum. Varaformaður sinnir forystustörfum með formanni og gegnir störfum formanns í forföllum hans. Ritari sér um ritun fundargerða á stjórnarfundum. Gjaldkeri er ábyrgur fyrir fjárreiðum félagsins. Meðstjórnendur sinna öðrum verkum sem stjórn ákveður. Stjórn skal á fyrsta fundi sínum skipta með sér verkum og setja sér skriflegar verklagsreglur til að vinna eftir.
4.4. Stjórnin skal halda minnst 12 stjórnarfundi á hverju starfsári. Stjórnarfundur er lögmætur ef meirihluti stjórnar er á fundi, þar með taldir formaður eða varaformaður.
4.5. Félaga- og ungmennaráð skulu kjósa sér hvort sinn áheyrnafulltrúa í stjórn og varafulltrúa þeirra, sbr. 5.3. og 6.3. gr. Áheyrnafulltrúarnir eiga seturétt á öllum stjórnarfundum með málfrelsi og tillögurétt. Ef stjórnarmaður forfallast skal áheyrnafulltrúi félagaráðs taka sæti hans.
4.6. Ef stjórnarmaður hverfur úr stjórn á kjörtímabili skal félagaráð skipa stjórnarmann í hans stað úr sínum röðum. Ef formaður hverfur úr stjórn á kjörtímabili skal varaformaður taka sæti hans. Ef varaformaður, gjaldkeri, ritari eða alþjóðafulltrúi hverfur úr stjórn skal stjórn skipa úr sínum röðum í embættið fram að næsta aðalfundi. Endurskipan í embætti innan stjórnar skal fara fram eftir að félagaráð hefur tilnefnt nýjan stjórnarmeðlim.
4.7. Samþykktar fundargerðir stjórnar skulu gerðar aðgengilegar á heimasíðu félagsins. Þegar stjórn fjallar um viðkvæm trúnaðarmál skal halda utan um þau í sérstakri trúnaðarbók sem einungis er aðgengileg stjórn.
5. Félagaráð, hagsmunaráð og ungmennaráð
Félagaráð
5.1. Félagaráð og hagsmunaráð eru samráðsvettvangur Samtakanna ‘78 og hagsmunafélaga þess.
5.2. Í félagaráði sitja 5 fulltrúar kjörnir af aðalfundi. Hlutverk félagaráðs skal vera fólgið í því að vinna að stefnumótun Samtakanna ‘78 í samvinnu við stjórn. Stærri ákvarðanir stjórnar um stefnumál, hagsmuni og starfshætti félagsins skulu koma til umfjöllunar á vettvangi félagaráðs áður en þeim er vísað til aðalfundar og/eða félagsfundar.
5.3. Fyrsti fundur félagaráðs skal haldinn eins fljótt og auðið er og eigi síðar en tveimur mánuðum eftir aðalfund. Formaður stjórnar Samtakanna ‘78 skal stýra fundi þar til oddvitifélagaráðs hefur verið kjörinn. Að kjöri loknu skal oddvitifélagaráðs taka við stjórn fundarins. Skal þá kjósa áheyrnarfulltrúa í stjórn og varamann hans. Félagaráð skal setja sér skriflegar starfsreglur á fyrsta fundi sínum.
5.4. Oddviti félagaráðs stýrir að jafnaði fundum þess. Í samráði við félagaráð ber hann ábyrgð á að starfsemi þess fari fram samkvæmt lögum þessum.
Hagsmunaráð
5.5. Hagsmunafélög hafa rétt til að skipa tvo fulltrúa í hagsmunaráð. Fulltrúar hagsmunaráðs þurfa að vera gildir meðlimir Samtakanna ‘78. Fulltrúar hagsmunaráðs hafa rétt til fundarsetu á fundum félagaráðs. Þeir hafa málfrelsi og tillögurétt á fundum félagaráðs og gæta þar hagsmuna sinna félaga. Hagsmunaráð kemur sér saman um fundarhöld og starfsreglur.
5.6. Félagaráð og hagsmunaráð funda svo oft sem þurfa þykir, með eða án stjórnar. Ef meirihluti stjórnar, félagaráðs eða hagsmunaráðs óskar eftir sameiginlegum fundi skal formaður stjórnar annast boð innan tveggja vikna frá því að beiðni um fundinn kom fram. Fundir í félagaráði og hagsmunaráði eru lögmætir sé til þeirra boðað samkvæmt starfsreglum. Samþykktar fundargerðir félagaráðs og hagsmunaráðs skulu gerðar aðgengilegar á heimasíðu félagsins.
Ungmennaráð
5.7. Tilgangur ungmennaráðs er að þau sem eru yngri en 18 ára geti tekið virkan þátt og haft áhrif í Samtökunum ‘78.
5.8. Í ungmennaráði sitja allt að níu kjörnir fulltrúar.
5.9. Ungmennaráðið er starfrækt hvert skólaár undir handleiðslu starfsfólks ungmennastarfs Samtakanna ’78 og samstarfsaðila. Fulltrúar eru kosnir á sameiginlegum vettvangi ungmennastarfsins ár hvert. Ungmennaráð skipar áheyrnarfulltrúa í stjórn Samtakanna ’78.
6. Félagsfundur
6.1. Félagsfundur fer með æðsta ákvörðunarvald félagsins á milli aðalfunda. Á félagsfundum hefur sérhver félagi rétt til að flytja mál varðandi félagið. Rétt til fundarsetu hafa einungis félagar með gilt félagsskírteini. Halda skal fundargerð félagsfunda. Fundur telst lögmætur sé löglega til hans boðað og hið minnsta 15 félagar sæki hann. Félagsfundi skal stýrt samkvæmt almennum fundarsköpum við afgreiðslu mála og í umræðum eftir því sem við á.
6.2. Stjórn skal boða til félagsfundar að vori og hausti og oftar ef þurfa þykir. Boða skal skriflega til félagsfunda með viku fyrirvara nema sérstakar aðstæður geri annað nauðsynlegt. Hið minnsta 15 félagar geta krafist þess að boðað sé til félagsfundar.
7. Fjármál
7.1. Félagsgjöld samkvæmt ákvörðun stjórnar skulu innheimt í upphafi árs. Ungmenni, nemar og lífeyrisþegar greiða lægra félagsgjald, svo og aðrir hópar, samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar.
7.2. Aðgangseyrir að viðburðum félagsins skal vera lægri gegn framvísun félagsskírteinis en annars. Félagsréttindi eru háð því að félagsgjöld séu greidd.
7.3. Gjaldkeri, ásamt framkvæmdastýri, hefur eftirlit með innheimtu tekna félagsins. Allar fjármunahreyfingar fara fram á bankareikningum Samtakanna ’78 sem gjaldkeri gerir grein fyrir í ársreikningum. Reikningsár félagsins er almanaksárið.
7.4. Sé ástæða til, skal stjórn kynna stöðu fjármála á félagsfundi að hausti. Aðalfundur tekur fjárhagsáætlun til meðferðar, sbr. 3.5. gr.
7.5. Stjórnin hefur umboð til að skipa launað starfsfólk, þar á meðal stjórnarliða. Hefðbundin stjórnarstörf skulu vera ólaunuð. Þó getur stjórn gert tillögu að þóknun fyrir formannsembætti, sem krefst samþykkis á aðalfundi ár hvert.
8. Lagabreytingar og félagsslit
8.1. Tillögur að lagabreytingum skulu hafa borist stjórn félagsins fjórum vikum fyrir aðalfund. Þær skulu síðan kynntar skriflega fyrir félögum minnst hálfum mánuði fyrir aðalfund. Undanþegnar þessum skilafresti eru tillögur sem lúta að orðalagi og formi en breyta á engan hátt efnislegu innihaldi áður framkominna tillagna. Lögum þessum verður ekki breytt nema með samþykkt á aðalfundi og þá með 2/3 hlutum greiddra atkvæða.
8.2. Félagið verður ekki lagt niður nema með samþykkt á aðalfundi sem hlotið hefur sömu meðferð og tillögur að lagabreytingum og þá með 2/3 hlutum greiddra atkvæða. Atkvæðagreiðsla skal vera skrifleg. Ber þá að eyða félagaskránni, en önnur gögn og eignir félagsins renna til skyldra félagasamtaka, þó ekki fyrr en eitt ár er liðið frá aðalfundi.