Fornafn: Hún
Sigríður Birna Valsdóttir (Sigga Birna) hefur verið ráðgjafi hjá Samtökunum ´78 frá upphafi árs 2009 og tók við nýju starfi teymisstýru ráðgjafaþjónustu í byrjun september 2022. Hún hefur verið virkur félagi í Samtökunum frá árinu 1995. Hún er með B.Ed frá Kennaraháskóla Íslands, MA í leiklistarmeðferð og sálmeðferð frá NYU og diploma á mastersstigi í Fjölskyldumeðferð frá Háskóla Íslands. Auk þess hefur hún sótt fjölmörg námskeið og ráðstefnur með því markmiði að endurmennta sig á sviði sálmeðferðar og hinsegin fræða.
Sigríður Birna hefur mikla reynslu af vinnu með ungu fólki, en hún vann m.a. í Hagaskóla í 18 ár þar sem hún sinnti nemendaþjónustu, fjölskylduráðgjöf og kenndi leiklist og setti upp söngleiki. Hún hefur líka haldið mörg námskeið og fyrirlestra og komið að ýmsum verkefnum með fjölskyldum og ungu fólki í samskiptavanda, tilfinningalegum vanda og/eða vímuefnavanda bæði á eigin vegum, hjá Foreldrahúsi og í vinnu sinni hjá Samtökunum ´78.
Eins hefur hún í gegnum árin verið dugleg að heimsækja starfsfólk skóla og annarra stofnanna og fræða það um hinsegin mál og undanfarin ár sérstaklega um málefni trans barna og ungmenna.
Sigríður Birna hefur mikla reynslu af vinnu með hinsegin fólki og býður upp á viðtöl við börn, unglinga og fullorðið fólk sem á í erfiðleikum með að skilgreina kynhneigð sína og/eða kynvitund. Hún býður líka upp á fjölskyldu- og/eða foreldraviðtöl og styður sérstaklega við fjölskyldur trans barna og ungmenna sem þess óska.
Undanfarin ár hefur hún sérhæft sig í starfi með trans börnum og ungmennum og fjölskyldum þeirra auk þess að sinna ráðgjöf og fræðslu til annars fagfólks sem vinnur með trans fólki.
Hún heldur einnig utan um stuðningshópa fyrir trans börn og ungmenni og fullorðið trans fólk og stuðningshópa fyrir foreldra og aðstandendur trans fólks á öllum aldri. Þessir fundir eru einu sinni í mánuði og má fá allar upplýsingar um þá hér.