Aðalfundur Samtakanna ’78
Aðalfundur er sá vettvangur þar sem allt er ákveðið í Samtökunum ’78.
Á aðalfundi er kjörin stjórn og félagaráð, ásamt yfirferð um fjárhag félagsins og öll önnur mál rædd. Samþykktum (lögum) félagsins er aðeins breytt á aðalfundi.
Vinsamlegast athugið:
Framboðsfrestur til stjórnar rennur út þremur vikum fyrir aðalfund (13. febrúar 2026)
Tillögur að lagabreytingum skulu hafa borist félaginu fjórum vikum fyrir aðalfund (6. febrúar 2026)
Dagskrá aðalfundar er:
Skipan fundarstýris og fundarritara
Lögmæti aðalfundar staðfest
Ársskýrsla fyrra starfsárs
Áritaðir reikningar fyrra árs kynntir og bornir upp til samþykktar
Fjárhagsáætlun ársins lögð fram
Laga- og stefnuskrárbreytingar
Kjör til formanns
Kjör til stjórnar
Kjör í félagaráð
Kjör skoðunarmanna reikninga
Afgreiðsla umsókna um hagsmunaaðild
Önnur mál
Frekari upplýsingar síðar!