Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Hinsegin fánasaga með Sindra „Sparkle“ Freyju í Árbæjarsafni

17. maí kl. 15:00 - 16:00

ATH! Viðburðurinn er ekki á vegum Samtakanna ’78

Verið hjartanlega velkomin á uppistand um hinsegin fánasögu með Sindra Sparkle ✨
Uppistandið fer fram á Árbæjarsafni sunnudaginn þann 17. maí kl. 15-16 í tilefni af Alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks og Alþjóðlega safnadeginum. Ókeypis inn og öll velkomin! 🏳️‍🌈
Sindri “Sparkle” Freyja er grínisti, rithöfundur, leikkona, grafískur hönnuður og margt annað. Seinustu árin hefur hán byggt feril sinn í kringum uppistands- og dragsenur Reykjavíkur. Þrátt fyrir það er hán ennþá aðallega þekkt fyrir að birtast nakið á sjónvarpsskjám þjóðarinar fyrir nokkrum árum. Hán er einnig einn helsti sérfræðingur heims í sögu hinsegin fána. Hán hefur túrað sýningum sínum erlendis og unnið fjölmörg verðlaun, þar með talið Nordic Fringe Network verðlaunin frá NFN og Rising star verðlaunin frá Reykjavík Fringe Festival.
Borgarsögusafn Reykjavíkur hlaut regnbogavottun árið 2022. https://reykjavik.is/regnbogavottun-reykjavikur 🌈
Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.
Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur).
Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði ókeypis.
//
Welcome to a stand-up show about the history of queer flags with Sindri Sparkle✨ Spoken language Icelandic 🇮🇸
The stand-up takes place at Árbær Open Air Museum on Sunday, 17 May, at 15:00–16:00, on the occasion of the International Day Against Homophobia, Transphobia, and Biphobia (IDABOBIT) and International Museum Day. Free admission and everyone is welcome! 🏳️‍🌈
Sindri “Sparkle” Freyja is a comedian, writer, actress, graphic designer, and more. In recent years, they have built their career around the stand-up and drag scenes of Reykjavík. Despite that, they are still mostly known for appearing naked on national television screens a few years ago. They are also one of the world’s leading experts on the history of queer flags. They have toured their shows internationally and won numerous awards, including the Nordic Fringe Network award from NFN and the Rising Star award from the Reykjavík Fringe Festival.
The Reykjavík City Museum received rainbow certification in 2022. https://reykjavik.is/en/rainbow-certification-reykjavik 🌈
Accessibility: Most walking paths in the museum area are gravel. Entry into most houses requires stepping up one step or over a threshold. Assistance dogs are welcome in the museum.
Public transport: The nearest bus stop is Árbæjarsafn (1-minute walk). Other nearby stops are Laxakvísl and Fagribær (5–6 minute walk).
Parking: Accessible parking spaces are located at the museum entrance. All parking is free.

Details

Organizer

Venue