Kynningarkvöld fyrir hinsegin fatlað fólk
27. mars kl. 17:00 - 19:00

ÖBÍ réttindasamtök og Samtökin 78 standa fyrir opnu kynningarkvöldi fyrir hinsegin fatlað fólk föstudaginn 27. mars milli kl. 17-19 í regnbogasalnum að Suðurgötu 3.
Markmið kvöldsins er að bjóða hinsegin fatlað fólk velkomið og kanna hvort að það sé áhugi hjá þáttakendum til að hittast aftur eða mögulega mynda hóp fyrir hinsegin fatlað fólk hjá Samtökunum 78.
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Við hvetjum allt hinsegin fatlað fólk á öllum aldri til að mæta og biðjum gesti um að virða trúnað við hvort annað.
Ekki hika við að hafa samband í gegnum netfangið kjartan@obi.is ef þið viljið óska eftir táknmáls- eða rittúlkun.