Öldungadeildin (60+)
Öldungadeildin – hommar, lesbíur, tví- pan- og eikynhneigð og trans fólk hittist að jafnaði þriðja fimmtudag hvers mánaðar klukkan 17-19. Hittingar Öldungadeildar eru ekki alltaf á sama stað, en alltaf aðgengilegir. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Samtakanna ’78 (sími opinn mánudag-fimmtudag kl. 09-11.30) fyrir frekari upplýsingar eða í gegnum Facebook hóp Öldungadeildar.
Athugið að þótt þessir viðburðir hafi áður verið auglýstir fyrir 60+, þá eru öll þau sem tengja við hópinn velkomin. Sjáumst!
Öldungadeildin has a Facebook-group.
