Skip to main content
FélagsfundurFundargerðir

1/6 2017 Félagsfundur

By 1. júní, 2017maí 24th, 2020No Comments

Félagsfundur Samtakanna ‘78

Starfsárið 2017 – 2018

1. félagsfundur

Þann 1. júní 2017 var haldinn félagsfundur í húsnæði Samtakanna ‘78 að Suðurgötu 3 kl. 20:00. Fundinn sátu 19 félagsmenn og telst því fundurinn löglegur.

María Helga Guðmundsdóttir, formaður, setur fundinn 20:10

1. Starfsáætlun starfsárið 2017-2018

Starfsáætlunin kynnt og rædd. Þess er getið að allt á áætluninni fram að júní hefur verið lokið nema opna samtal við stjórnir hagsmunafélaga Samtakanna ‘78.

Starfsáætlunina má finna hér.

Hugmyndir vegna Stonewall dagsins 27. júní: “Ráðast” inn á bari og vekja gesti til vitundar. “Partycar”. Performance arts.

Engar breytingar urðu á drögunum í umræðum og mun stjórn því starfa eftir þeim.

2. Starfshópar starfsárið 2017-2018

Hugmyndir að starfshópum kynntar og ræddar.

Lagt til að boðið verði upp á Skype aðgang að viðburðum, sérstaklega þeim sem beint er að fólki af erlendum uppruna.

Fundi slitið 21:45

Fundargerð ritaði Álfur Birkir Bjarnason, ritari

Leave a Reply