Skip to main content
FundargerðirStjórn

10. Stjórnarfundur 2019

By 31. október, 2019apríl 29th, 2020No Comments

Mætt: Þorbjörg, Rúnar, Daníel, Heiðrún, Bjarndís, Edda, Rósanna, Unnsteinn, Sigurður Júlíus

Ritari: Bjarndís Helga Tómasdóttir

Fundur settur: 17:05

1. Samþykkt síðustu fundargerðar

Fundargerð síðasta fundar samþykkt.

2. Félagsfundur

Farið yfir dagskrááætlun. Rætt hvernig boða á til félagsfundar svo lögin séu uppfyllt.

3. ILGA Europe

Þorbjörg, Daníel og Marion voru á ILGA.
Farið yfir það sem upp úr stóð. Mikil gróska í Bi+ starfi út um allt sem er mikill innblástur fyrir stjórn Samtakanna 78 að efla starf Bi+ fólks á Íslandi.
Uppgangur hægri öfgaafla í Evrópu sem ógnar tilveru hinsegin fólks. Gerð var könnun í fyrra og endurtekið nú í ár sem sýna að hinsegin fólk á meira og meira undir högg að sækja.
Lögð voru drög að norðurlandasamtarfi, í samstarfi næst besti árangurinn.

Daníel hlaut kosningu sem varamaður stjórnar ILGA Europe.

Lagt til að stjórn hittist þar sem ILGA þríeykið deilir betur því sem þau lærðu á ráðstefnunni. Sú tillaga var samþykkt og stefnt á eins konar jólafundi stjórnar.

4. Skráning á hatursglæpum

Daníel minnir stjórn á að fara yfir tilkynningaform svo hægt sé að koma því í notkun.

5. Umsagnir um lagafrumvörp

Þorbjörg segir frá umsagnarbeiðnum sem borist hafa samtökunum.

6. Viðburðir – hugmyndir (HIV, heimilisofbeldi)

Komið hafa hugmyndir að viðburðum.
HIV og prepp. Unnsteinn og Einar Þór hafa verið að vinna að svipuðum viðburði. Hugmynd að vinna að þessum viðburði á næstu önn.
Hjúkrunarfræðingar sem hafa nýlega hafið störf á A3 vilja gjarnan halda opin fræðslufund um
Svandís Anna hafði samband og hefur verið að vinna að verkefnu um heimilisofbeldi og vill gjarnan fá að kynna sínar niðurstöður.
Unnsteinn stingur upp á að samþætta þessa viðburði næsta aðalfundi og er tekið vel í það.

7. Viðburðir framundan – staðan

Bingó (8. desember)- Heiðrún fer yfir stöðu á bingó-málum. Óskar eftir hugmyndum að fyrirtækum til að tala við. Unnsteinn í bingónefnd. Stjórn hvött til að deila FB viðburði.
Félagsfundur – Sjá lið 2.
Bleikþvottur – Unnsteinn ræðir stöðuna. Verið er að skoða hvernig best væri að standa að þessu. Í ljósi anna er ákveðið að geyma viðburðinn fram á næstu önn, mögulega á aðalfundi.
Jólaglögg stjórnar og trúnaðarráðs – farið yfir ILGA málefni og jólaglaðst

nóvember – Minningardagur Intersex fólks. Rætt hvernig Samtökin geta sýnt samstöðu.

desember – HIV dagurinn. Mikilvægi þess dags rætt og hnykkt á því að undirbúa viðamikinn viðburð á aðalfundi.
Aðalfundur – Dagsetning rædd. Tillaga að 7.-8. mars.

8. Aðild að NELFA

Stjórn samþykkir inngöngu í NELFA- Regnbogafjölskyldusamtök Evrópu. Félagsgjöld eru 100 evrur á ári.
Þorbjörg hafi samband við félag hinsegin foreldra og athugar hvort þau hafa áhuga á að koma að vinnu og samstarfi við NELFA.

9. Viðbrögð við samfélagsumræðu

Stjórn ræddi möguleg viðbrögð við umræðu um Samtökin ‘78.

10. Kjörnefnd

Stjórn hefur leitast eftir framboðum til kjörnefndar og telur að komin séu góð framboð.

11. Önnur mál

Rætt um að bjóða sjálfboðaliðum í partý í framhaldi af jólaglögg eða hafa viðburð strax í janúar. Ræða frekar á næsta stjórnarfundi.
Úthringikvöld vegna Regnbogavina 26. nóvember.
Á fundi stjórnar og trúnaðarráðs voru rædd kjörorð Samtakanna 78. Rætt hvernig nýta má þá vinnu.