13. Stjórnarfundur S78 16.10.2013
Mætt: Stjórnarmennirnir Fríða Agnarsdóttir, Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson (Villi), Sigurður Júlíus Guðmundsson (Siggi), Svandís Anna Sigurðardóttir (SAS), Guðrún Arna Kristjánsdóttir (GAK), Anna Pála Sverrisdóttir (APS) og Gunnar Helgi Guðjónsson (GHG)(Áheyrnarfulltrúi Trúnaðarráðs)
Fjarverandi: Örn Danival Kristjánsson, Sverrir Jónsson (Áheyrnarfulltrúi Trúnaðarráðs), Árni Grétar Jóhannsson (ÁG)(framkvæmdastjóri S78)
Fundur settur: 17:19
1. Fundargerð síðasta fundar: Samþykkt
2. Viðburður í samstarfi við Amnesty International vegna bréfasöfnunar – Hvað viljum við gera?
-
Viðburður í desember. ÁG leggur til að sameina þetta aðventukvöldi. Stjórn samþykkir. ÁG lætur Amnesty vita.
-
ÁG ræðir þá skipulagningu aðventukvöldsins, hann mun finna dagsetningu. GHG ræðir við formann trúnó um að koma að kvöldinu.
3. Fundur með FHF- niðurstöður – GHG/GAK/ÁGJ
-
GHG og GAK hafa fundað með félagi hinsegin foreldra og fengið upplýsingar frá félaginu. Fáir karlmenn í félaginu, en nokkuð stórt félag, samfélag hinsegin foreldra ansi stórt. S78 fá leyfi til að nýta vettvang þeirra á Facebook til að afla upplýsinga og fá ábendingar.
-
GHG, GAK og ÁG munu fá upplýsingar frá þeim áður en haldinn er opinn fundur til að ræða fjölskyldumál hinsegin fólks.
-
Innan tveggja vikna verður búið að óska eftir sögum og upplýsingum og boða opinn. fund.
4. Húsnæðismál S78
-
ÁG ætlar að skoða Vitastíginn aftur. Fáum aldrei fullkomið húsnæði en þetta er nokkuð gott. Þetta þarf einnig að ræða á félagsfundi.
5. Samstarfsverkefni við Úganda, praktískt mál
-
Krafa um að ársreikningur félagsins verði stimplaður af löggiltum endurskoðenda. Þurfum að finna endurskoðenda sem getur tekið þetta að sér. ÁG skoðar.
6. Jólabingó
-
6. desember verður jólabingóið. Þarf að finna vinninga. Fríða er með skjal um það sem þarf að muna fyrir viðburðinn. Spurning um að biðja einn aðila um að halda utan um.
-
ÁG ræðir við hugsanlega skemmtistjóra.
7. Minningardagur transfólks
-
SAS biður APS um að ath með Hallveigarstaði. Teymið kallar eftir stuðningi allra félagsmanna.
-
ÁG verður í fjölmiðlatengslum varðandi viðburðinn. Þarf að fá Uglu og Örn með.
-
Verður miðvikudagskvöld kl. 20.00 (20. nóvember).
-
SAS verður tengiliður stjórnar við Teymið og TÍ.
-
ÁG bendir á kertabrekku sem hægt er að fá hjá t.d. kirkjum.
8. Félagsfundur
-
ÁG búinn að senda út fyrstu tilkynningu um fundinn. Rætt verður um ársreikning og kjörnefnd.
-
Ákveðið að byrja stundvíslega kl.14.00. Fundur stendur til kl.15.00, kaffipása og 15.15 byrjar kynning Lísu (ÁG ræðir við hana).
9. Partýhald stjórnar og trúnaðarráðs
-
Bókað að hafa partý 2. nóv um kvöldið heima hjá ÁG, eftir félagsfund. Út að borða með Guðrúnu og svo partý.
10. Önnur mál
a) Kynlífsfræðsluvika
Siggi og Maggi í BDSM hafa rætt um aukið samstarf og koma á ákveðnum fræðsludögum varðandi kynlíf í sinni víðustu mynd. Rætt um að gera eftir áramót. Hugmynd að fá Uglu með í vinnuna.
Hugmyndin er að fá sem flesta aðila með, landlækni, fræðasamfélagið, félagasamtök o.fl. APS mælir með Ástráði sem samstarfsaðilum.
Fundi slitið: 18.25
Næsti fundur verður: 30.10.13 kl.17.00 (með fyrirvara um breytingar)
Fundarritari: Svandís Anna Sigurðardóttir