Skip to main content
FundargerðirStjórn

14. Stjórnarfundur S78 06.11.2013

By 11. desember, 2013mars 6th, 2020No Comments

14. Stjórnarfundur S78 06.11.2013

 

Mætt: Stjórnarmennirnir Fríða Agnarsdóttir,Svandís Anna Sigurðardóttir (SAS), Guðrún Arna Kristjánsdóttir (GAK), Örn Danival Kristjánsson, Árni Grétar Jóhannsson (ÁG)(framkvæmdastjóri S78), Sigurður Júlíus Guðmundsson (Siggi), Anna Pála Sverrisdóttir (APS),

 

Fjarverandi: Gunnar Helgi Guðjónsson (GHG)(Áheyrnarfulltrúi Trúnaðarráðs), Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson (Villi), Sverrir Jónsson (Áheyrnarfulltrúi Trúnaðarráðs),

 

Fundur settur: 17:21

 

1.  Fundargerð síðasta fundar: Samþykkt

 

2. Félagsfundur 9. nóvember

 

  • ÁG búinn að senda út fundarboð. Lýsir áhyggjum á framboði í kjörnefndina.

  • APS og Hilmar munu kynna ILGA fundinn. Einnig mun ÁG biðja Auði Möggu um að kynna skýrsluna frá Samtakamættinum.

 

3. Aðventukvöld

 

  • Auður Halldórs er búin að samþykkja að taka að sér bókamenntadagskrána. ÁG mun negla dagsetningu í samvinnu við Auði. Stjórn leggur til fimmtudagskvöld ef það gengur.

  • ÁG segir frá því að Amnesty liðurinn fylgir þessu.

 

4. Jólabingó

 

  • Ekki hefur náðst í Sigríði Eir (Hljómsveitin Eva). APS á eftir að heyra í Sverri (trúnó) varðandi það að taka þetta að sér.

  • Fríða talar um aðgerðarlista sem er inni á dive-inu. Einnig vinningaskrá.

 

5. Væntanleg ný löggjöf á sviði jafnréttismála, útvíkkun jafnréttishugtaksins

 

  • SAS segir frá því að ný löggjöf sé væntanleg sem á að veita auka vernd/útvíkka jafnréttishugtakið (ekki bara kynjajafnrétti), byggt á lögum Evrópusambandsins.

  • Huga þarf að hugtakinu og hugmyndafræðinni á bakvið ‘kynvitund’, en það hefur einungis átt við fólk sem er á leið í, stendur í eða hefur lokið kynleiðréttingarferli. Það nær ekki yfir allan trans* hópinn. Það þarf að krefjast útvíkkunar á þessu.

  • Einnig beita þrýstingi á Jafnréttisstofu um að ráða sérstaklega sérfræðing í hinseginmálum. Aðrir hópar eru dekkaðir með sameiningu Fjölmenningarseturs, Jafnréttisstofu og Réttargæslumönnum fatlaðs fólks. Það er ekki nóg að ráða inn hinsegin manneskju, heldur (hinsegin) manneskju sem hefur vit á hinsegin málum.

  • SAS óskar eftir því að setja þetta inn á dagatal framkvæmdastjóra og jafnvel biðja lögfræðihópinn um að hafa eyru og augu opin og fylgjast með gangi þessara mála. Einnig setja þetta á dagskrá ef þingsályktunartillaga um skipun nefndar um málefni hinsegin fólks verður að veruleika.

  • APS nefnir að bjóða Jafnréttisstofu í heimsókn í janúar. ÁG setur í dagatal.

 

6. Minningardagur transfólks

 

  • SAS og Örn ræða um að fá posa frá S78 til að rukka félagsgjöld TÍ. Einnig að hafa einhvern til að taka á móti kökum fyrr um kvöldið. Ákveðið að stjórnarfundur verður sama kvöld og því fólk viðstatt til að taka við kökum o.fl.

  • Vantar ennþá einhvern til að spila undir kerta tendrun.

  • Að öðru leyti er dagskráin öll að koma til.

 

7. Óformleg könnun meðal félagsmanna vegna mismununar á vinnumarkaði

 

  • ÁG fer í þetta mál strax.

 

8. Trúnaðarmál

 

9. Opinn fundur vegna mótunar fjölskyldustefnu

 

  • GAK og GHG hafa ekkert heyrt frá ráðuneytinu. APS leggur til að við hringjum í ráðuneytið. Út frá því mun vera ákveðinn opinn fundur með félagsmönnum.

 

10. Samstarfsverkefni með FARUG í Úganda

 

  • APS segir frá því að þetta sé í vinnslu í ráðuneytinu. Ásthildur sendi utanríkisráðuneytinu svar, gögn frá FARUG styrktu umsóknina. ÁG er að reka á eftir stimplaða endurskoðun á ársreikningum okkar.

  • Jón Þór er á haus en það mun vera rætt við hann aftur varðandi styrktartónleika.

 

11. Ársfundur ILGA Europe í Zagreb 24.-26. okt.

 

  • Frestað fram á laugardaginn (félagsfundinn).

 

12. Framhaldsskólarannsóknin

 

  • APS er búin að biðja um stöðuna á þessari könnun. Trans spurningarnar fóru ekki inn í könnunina, þrátt fyrir mikla ítrekun af okkar hálfu. Það á eftir að skoða hvernig könnunin lítur út og hvernig/hvort við getum fjármagnað úrvinnslu úr henni.

 

13. Rússland

 

  • APS hefur rætt við alþjóðanefndina um að senda frá okkur ályktun, sem gæti verið rædd og samþykkt á félagsfundinum. Þá yrði ákall til íslenskra stofnanna og yfirvalda.

 

14. Útleiga á salnum

 

  • Það var eftirpartý eftir útleigu á sal S78 fyrir laugardaginn þar síðasta, um miðja nóttu. Eftir það var mikill sóðaskapur og flöskum stolið frá nágrönnum á hæðinni fyrir ofan.

  • ÁG hefur verið í samskiptum við leigjendur sem vilja ekki gangast við því sem var hér í gangi (stjórnarmenn hafa upplýsingar um það sem á gekk).

  • Umræða um hvort eigi að hætta að leigja út salinn. ÁG ræðir að þetta var úrræði þegar félagið stóð mjög illa fjárhagslega.

  • ÁG talar um rýrnun á húsnæði og vitneskju fólks um möguleikann á útleigu og vandamálum sem geta fylgt því (sbr. eftirpartýi).

  • Fríða ræðir um eftirpartý félagsmanna sem hafa lyklavöld.

  • Stjórn ræðir það að taka fyrir útleigu á salnum, að það verður einungis leigt út til stjórnar-, trúnaðarmanna og starfsmanna. Einnig að það verði skýrt tekið fyrir eftirpartý og að reglur varðandi útleigu verði mjög skýrar öllum félagsmönnum. Þetta verður rætt við gjaldkera áður en endanleg ákvörðun verður tekin.

  • APS biður ÁG og Fríðu að taka saman þá sem hafa lykla og hafa samband við alla og skerpa á reglunum um lokun á húsinu kl.1.

 

15. Önnur mál

a) Rainbow síðan – forum síða

 

  • APS bendir á að athuga þetta. ÁG ætlar að skoða þetta betur og athuga hvort hægt sé að sameina síðuvinnslu hjá fræðslunefnd og rainbow síðuna.

 

b) Flensborg hefur haft samband varðandi fræðslu frá S78

 

  • Kvartað hefur verið undan kostnaði við fræðslu. ÁG spyr hvort sé ekki áfram rukkað fyrir fræðsluna. Stjórn samþykkir að svo verði.

 

c) Þorvald
ur Kristinsson leggur til lokun á bókasafninu á kvöldin

 

  • ÁG kynnir þetta, mest öll útleiga á bókum er að degi til – lítið að gera hjá sjálfboðaliðum á kvöldin. Stjórn samþykkir.

 

d) Kona hafði samband vegna fordóma sem gagnkynhneigður mætti þar sem hann var talinn samkynhneigður á Thorvaldsen s.l. helgi

 

  • Eiginmaður hennar mætti fordómum út frá bleikri húfu. Hann fékk ekki leyfi til að koma inn á staðinn þar sem hann var talinn laða að sér óæskilega viðskiptavini, og var sagt við hann að til væru hommastaðir sem hann gæti farið á.

  • Hannes þekkir eiganda staðarins og hefur haft samband við hana. Villi og ÁG eru einnig í málinu. Konan er nú í sambandi við eigandann og mun halda ÁG upplýstum.

  • Stjórn er mjög þakklát þessu erindi og hlakkar til að sjá hvað kemur úr þessu.

 

e) Aftur var ráðist á samkynhneigðan einstakling eftir Pink partý s.l. laugardag.

 

  • ÁG upplýsir stjórn um líkamsárásina sem virðist haturstengd. APS spyr hvort eigi að kæra. Stjórn ræðir hvort ekki sé hægt að gera eitthvað til að styðja viðkomandi. Umræða um að athuga varðandi myndavélar á því svæði þar sem atvikið átti sér stað.

  • APS felur ÁG það verkefni að hafa samband við yfirmann lögreglu varðandi þessi mál. En á sama tíma að upplýsa brotaþola.

  • Stjórn biður ÁG einnig um að þakka aðilanum fyrir sem kom og stoppaði árásina.

 

f) Fjarvistir APS

 

  • APS verður erlendis í tvær vikur og verður í litlu sambandi. Siggi stjórnar næsta fundi.

 

Fundi slitið: 18:38.
Næsti fundur verður: 20.11.2013 (minningardagur trans fólks) kl. 17.15

Fundarritari: Svandís Anna Sigurðardóttir

Leave a Reply