Skip to main content
FundargerðirStjórn

15. Stjórnarfundur 2015

By 2. febrúar, 2015apríl 20th, 2020No Comments

Fundurinn var haldinn að Suðurgötu 3 í Reykjavík og hann sátu Hilmar Hildarson Magnúsarson formaður (HHM), Auður Magndís Auðardóttir meðstjórnandi (AMA), Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir meðstjórnandi (AÞÓ), Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson gjaldkeri (VIV), Gunnar Helgi Guðjónsson meðstjórnandi (GHG) Kamilla Einarsdóttir, ritari (KE).
Einnig sátu fundinn Árni Grétar Jóhannsson framkvæmdastjóri (ÁGJ) og Valgerður Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi trúnaðarráðs (VJ), Ugla Stefanía Jónsdóttir USJ.
Forföll: Svandís Anna Sigurðardóttir varaformaður (SAS).

Ár 2015, mánudaginn 2. febrúar kl.17:15 var haldinn fundur stjórnar Samtakanna ‘78.
Hilmar Hildarson Magnúsarson ritaði fundargerð

1.Dagskrá næstu 12 vikna – 19.01.14 til 13.04.15

dagsetning kl.  viðburður/verkefni staður
02.02.15 17.15 Stjórnarfundur Suðurgata 3
04.02.15 20.00 Trans Íslnad Óákveðið
08.02.15 17.30 Ungliðar Óákveðið
15.02.15 17.30 Ungliðar Óákveðið
06.02.15 17.15 Stjórnarfundur Suðurgata 3
21.02.15 19.00 Sjálfboðaliðakvöldverður Óákveðið
22.02.15 17.30 Ungliðar Óákveðið
01.03.15 17.30 Ungliðar Óákveðið
02.03.15 17.15 Stjórnarfundur Suðurgata 3
08.03.15 17.30 Ungliðar Óákveðið
15.03.15 17.30 Ungliðar Óákveðið
16.03.15 17.15 Stjórnarfundur Suðurgata 3
21.03.15 17.15 Aðalfundur Samtakanna ’78 Suðurgata 3
22.03.15 17.30 Ungliðar Suðurgata 3
29.03.15 17.30 Ungliðar Suðurgata 3
05.04.15 17.30 Ungliðar  Suðurgata 3
12.04.15 17.30 Ungliðar Suðurgata 3
19.04.15 17.30 Ungliðar Suðurgata 3
26.04.15 17.30 Ungliðar Suðurgata 3

2.Forgangsmál

Almennt félagsstarf – Aðalfundur (ársþing), kjörnefnd o.fl.

Áminning um aðalfund, með upplýsingum um framboðsfrest og hvatningu fari út á morgun. Minnt verði á að frestur til lagabreytingatillagna sé 21. b. Muna að hafa þetta á ensku. Árni heyri í kjörnefnd, hvetji til að þessi áminning sé frá þeim. Ábyrgð: ÁGJ og HHM. – Í vinnslu.

Almennt félagsstarf – Markmiða- og verklýsingar f. fræðslu og ráðgjöf – starfshópar

Ábyrgð: ÁGJ, USJ, SAS og HHM. – Í vinnslu.

Almennt félagsstarf – Sjálfboðaliðakvöldverður

Árni og Gunnar halda áfram að vinna í þessu. Mikilvægt að boð fari út fyrir lok vikunnar. Þarf einnig að finna húsnæði. Hugsanlega Tin Can? Borgartúni 1. Þar er gott aðgengi.Ábyrgð: ÁGJ og GHG. – Í vinnslu.

Almennt félagsstarf – Ungliðastarf – Umsjónarfólk ungliða mætir a fund

 

Fjármál og fjáröflun – Samningur við borg og fjárveitingar frá ríki – félagatal og rekstur

Hilmar ætlar að senda þetta í vikunni til borgarinnar. Það þarf að ýta á aðstoðarmann félagsmálaráðherra um að ganga frá samningi við okkur.
Ábyrgð: ÁGJ, VIV og HHM. – Í vinnslu.

Fræðsla og rannsóknir – Fræðslubæklingur

Unnið er í lokaútgáfu fræðslubæ
klings ásamt starfsfólki mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Lesa þarf yfir drög að lokaútgáfu. Hönnuðurinn var að senda uppkast í dag. Verður sent prentun í þessari viku. Ábyrgð: USJ og SAS. – Í vinnslu.

Húsnæðismál – Suðurgata 3 – staða framkvæmda og næstu skref

Það er sennilega búið að sækja um milliútekt. Það fer fram í vikunni. Það þarf að heyra í Helga Steinari með eignaskiptasamninginn, VIV ætlar að heyra í honum sem fyrst. Ábyrgð: ÁGJ og VIV. – Í vinnslu.

3.Staða annarra mála frá síðasta fundi- Öllu frestað. Sjá fundargerð: 19.janúar.

Almennt félagsstarf – Ársþing Samtakanna ‘78 í tengslum við aðalfund
Frestað til næsta fundar. Ábyrgð: HHM.

Almennt félagsstarf – Jafnréttis- og umhverfisstefna S78

AMA vinni áfram að jafnréttisstefnu. Áhugasömum félögum verði boðið að vera með. Hrönn hjá Reykjavíkurborg er tilbúin til áframhaldandi samstarfs um umhverfisstefnu. Verkefnin verði skilin að og unnin hvort í sínu lagi. Miðað við að hægt verði að kynna félagsfólki einhverja afurð á félagsfundi. Tekið upp á næsta fundi á ný. Ábyrgð: AMA, ÁGJ, HHM, SAS.

Almennt félagsstarf – Félagsstarf, viðburðahópur og aðrir starfshópar/nefndir

Frestað þar til milliúttekt hefur farið fram og framkvæmdir komnar á skrið.. Ábyrgð: GHG, HHM.

Almennt félagsstarf – Stefnumótun S78 og Samtakamáttur

Frestað þar til framkvæmdir við húsnæði eru yfirstaðnar. Sjá fundargerð 17.9.14. Ábyrgð: HHM.

félagsstarf – Mannréttindaviðurkenning Samtakanna ´78

Frestað þar til framkvæmdir við húsnæði eru yfirstaðnar. Sjá fundargerð 17.9.14. Ábyrgð: HM.

Alþjóðamál – „Networks against hate“ með FELGBT í Madríd og „No Hate“ ráðstefna

Frestað til næsta fundar. Ábyrgð: AÞÓ og HHM.

Fjármál og fjáröflun – Fjármál ungliða

Frestað til næsta fundar. Ábyrgð: VIV. – Í vinnslu.

Fjármál og fjáröflun – Félagaskráningarkerfi

VIV falið að ræða við Ragnar Þorvarðarson félagsmann um félagaskráningarkerfi sem hann hefur nýtt á vettvangi annarra félagasamtaka og gæti gagnast S78 vel við utanumhald félagatals. VIV upplýsir stjórn á næsta fundi.Ábyrgð: VIV. – Í vinnslu.

Fræðsla og rannsóknir – Lögreglubæklingur

Frestað til næsta fundar. Ábyrgð: SAS, USJ. – Í vinnslu.

Fræðsla og rannsóknir – Fræðsla um fötlun til ráðgjafa

Frestað til næsta fundar. Ábyrgð SAS, USJ. – Í vinnslu.

Fræðsla, og rannsóknir – Fræðslufundur í Ráðhúsi

Frestað til næsta fundar. Ábyrgð: USJ. – Í vinnslu.

Hatursglæpir og hatursorðræða – skráning, tölfræði og birting

Stefnt að þvi að vinna þessi mál í beinu framhaldi af lögreglubæklingi og nýta þekkingu úr Madrídarverkefni. Frestað til næsta fundar. Ábyrgð: HHM, AÞÓ, ÁGJ o.fl.. – Í vinnslu.

Lýðheilsa og íþróttir – Hinsegin jóga og fleira

Frestað þar til framkvæmdir við húsnæði eru yfirstaðnar. Skoðað í viðburðarhópnum í samvinnu við íþróttahópinn.Sjá fundargerð 17.9.14. Ábyrgð: HM.
Lýðheilsa og íþróttir – Lýðheilsuhópur og verkefnisstjórn um HIV tékk
Frestað þar til framkvæmdir við húsnæði eru yfirstaðnar. Sjá fundargerð 17.9.14. Ábyrgð: HHM.

Menning og viðburðir – Minningardagur tran sfólks 20. nóvember 2014

Viðburðurinn var vel sóttur og þótt takast vel. Ábyrgð: USJ, HHM. – Lokið.

Menning og viðburðir – Alþjóðlegi AIDS dagurinn 1. desember

Fulltrúar S78 mættu á viðburð hjá HIV-Ísland. Viðburðurinn var fjölmennur og góður og voru ræddir ýmsir fletir á mögulegu framtíðarsamstarfi við forsvarsmenn félagsins.

Ráðgjöf – lögfræðiráðgjöf, stjórnsýsluerindi o.fl.

Frestað til næsta fundar. Ábyrgð: ÁGJ, HHM. – Í vinnslu.

Réttindabarátta og löggjöf – Starfshópur ráðherra um málefni hinsegin fólks

Unnið er í samræmi við þær áherslur sem S78 hafa markað og endurspegla þemaskiptingu viðfangsefna skv. lista ILGA Europe. Rætt um mikilvægi þess að leggja áherslu á innleiðingu mismununartilskipana ESB. Rætt um áhyggjur af starfi og umgjörð nefndarinnar. Ábyrgð: ÁGJ, SAS og HHM – Í vinnslu.

Réttindabarátta og löggjöf – Starfshópur um fjölskyldustefnu

Send var umsögn í desember varðandi starf hópsins. Frestað til næsta fundar. Ábyrgð: GHG, HHM og ÁGJ. – Í vinnslu.

Upplýsinga- og kynningarmál – Heimasíða og Facebook

Bregðast þarf við öryggisgöllum í Joomla kerfinu og spá í útlitsbreytingum á vefnum. Frosti Jónsson og Páll Guðjónsson hafa boðist til þess að vera S78 innan handar með uppfærslu o.fl. þessu tengt. Mikilvægt er að koma á fundi með þeim, Sigurði Júlíusi Guðmundssyni, formanni og framkvæmdastjóra sem fyrst til að fara yfir málin. ÁGJ setji sig í samband við aðila og finni hentugan tíma. Ábyrgð: ÁGJ. – Í vinnslu.

Upplýsinga- og kynningarmál – Stattu með!

ÁGJ hittir Baldvin í vikunni og upplýsir stjórn um gang mála á næsta stjórnarfundi. Ábyrgð: ÁGJ. – Í vinnslu.

Upplýsinga- og kynningarmál – Þýðing á barnaefni og útgáfa

S78 fengu 270.000 kr. styrk frá mannréttindaráði Reykajvíkurborgar í desember til þýðingar á hinsegin barnaefni og útgáfu. Leyfi er komið fyrir þýðingu. AMA hefur haldið utan um málið. ÁGJ falið að hafa samband við Veturliða Guðnason þýðanda v. þýðingar. Ábyrgð: AMA og ÁGJ.

4.Önnur mál

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:00.

Leave a Reply