Skip to main content
FundargerðirStjórn

16. fundur stjórnar S78 14. nóvember 2012

By 28. nóvember, 2012mars 6th, 2020No Comments

Mættir: Stjórnarmennirnir: Guðmundur Helgason (Mummi), Svavar Gunnar Jónsson, Sigurður Júlíus Guðmundsson (Siggi), Fríða Agnarsdóttir, Ragnheiður Ásta Þorvarðardóttir, Gunnlaugur Bragi, Sigurlaug B. Arngrímsdóttir sat fundinn sem fulltrúi trúnaðarráðs.

Fjarverandi: Forföll boðaði Árni Grétar Jóhannsson framkvæmdastjóri.

Fundur settur 19:27

  1. Fundargerð síðasta fundar borin til samþykktar 
    Samþykkt
  2. Félagsfundur fimmtudaginn 15.nóvember – undirbúningur og verkaskipting 
    Gunnlaugur fer yfir fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 sem hann mun kynna á félagsfundi
    Helstu verkefni starfsársins: Guðmundur kynnir
    Nefndir og starfshópar: Sigurður kynnir nefndir, meðlimi þeirra og verkefni
    Afmælisárið: Guðmundur kynnir og óskar eftir hugmyndum
    Ragnar Þorvarðarson verður fundarstjóri félagsfundar
    Svavar stendur barvaktina
  3. Jólabingó – undirbúningur
    Öflun vinninga í fullum gangi undir umsjón Ragnheiðar Ástu
    Stjórnarmenn hafa alla anga úti varðandi vinninga
    Gunnlaugur og Sigurlaug eru að vinna í að útvega dráttarstjóra
  4. Menningarkvöld í desember
    Rætt um mögulegar dagsetningar fyrir menningarkvöld í desember
    Samþykkt laugardagskvöld 15. desember kl. 20:00
    Guðmundur kannar með fólk í undirbúning
  5. Jólahlaðborð fyrir sjálfboðaliða 
    Ákveðið að fresta jólahlaðborði vegna mikilla anna í desember
    Haldið verður nýársboð laugardaginn 12. janúar kl. 19:30
    Árni Grétar tekur boltann
  6. Kjörnefnd – auglýsing eftir fólki
    Tillaga stjórnar að kjörnefnd fyrir aðalfund 2013:
    Árni Grétar Jóhannsson, framkvæmdastjóri
    Anna Kristjánsdóttir, fv. stjórnarmaður S ’78
    Íris Ellenberger – líklega
  7. Önnur mál
  • Engin önnur mál

Fundi slitið 21:15 | Næsti fundur: miðvikudagur 28. nóvember 2012 kl. 19:15.
Fundarritari: Gunnlaugur Bragi, gjaldkeri.

Leave a Reply