Skip to main content
FundargerðirStjórn

16. Stjórnarfundur 2017

By 25. janúar, 2017mars 16th, 2020No Comments

Fundinn sátu: María Helga Guðmundsdóttir – MHG, formaður. Benedikt Traustason – BT, gjaldkeri. Álfur Birkir Bjarnason – ÁBB, ritari. Sigurður Júlíus Guðmundsson – SJG, meðstjórnandi. Erica Pike – EP, áheyrnarfulltrúi í stjórn. Helga Baldvins- Bjargardóttir – HBB, framkvæmdastýra. Sólveig Rós – SR, fræðslustýra.

Þann 25. janúar 2017 var haldinn fundur í húsnæði Samtakanna ‘78 að Suðurgötu 3 klukkan 8:55.
Fundargerð ritaði Álfur Birkir Bjarnason

Fundur settur 8:55 – 25. janúar 2016.

1.Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 15. fundar samþykkt.

2.Erindi frá Andrými

Leggjum til að trúnaðarráð taki erindið upp. MHG býðst til að kynna erindið fyrir trúnaðarráði.

3.Hækkunin á félagsjöldum (Valitor búið að rukka)

Bakfærum færslur sem farnar eru og sendum inn aftur síðar.

4.Erindi frá Bryndísi Ruth um kaup á dóti í barnahorn

15.000 kr. Úthlutað í kaup á dóti í barnahorn.

5.Viðhorfskönnun, auglýsing félagsfundar, afsl.hún pabbi

Félagsfundur færður til 16. Febrúar.

Auglýsum viðhorfskönnun, samtakamáttinn og afslátt á Hún pabbi.

6.Afsláttur hinseginfélaga á fræðslum Samtakanna ‘78

Ákveðið að veita hinseginfélögum afslátt af fræðslum á viðburðum á þeirra vegum til reynslu. Þetta þarf að ræða betur.

Fundi slitið: 9:50

Leave a Reply