Skip to main content
FundargerðirStjórn

5. Stjórnarfundur 2016

By 12. apríl, 2016mars 18th, 2020No Comments

Fundinn sátu: Hilmar Hildar Magnúsarson, Ásthildur Gunnarsdóttir, Heiður Björk Friðbjörnsdóttir, Kitty Anderson, Unnsteinn Jóhannsson og Ugla Stefanía Kristjönudóttir. Einnig sátu fundinn Auður Magndís Auðardóttir og María Helga Guðmundsdóttir.
Forföll boðaði Júlía Margrét Einarsdóttir.

Ár 2016, þriðjudaginn 12.4.2016 var haldinn fundur stjórnar Samtakanna ‘78 í húsnæði samtakanna að Suðurgötu 3 í Reykjavík.
Fundargerð ritaði María Helga Guðmundsdóttir.

Fundur settur 12:03

1.Eftirköst félagsfundar 9. apríl

Erfiður fundur en niðurstaða er komin í málið. Yfirlýsing var skrifuð á sunnudeginum og fór út á mánudagsmorgun. Ásthildur tók viðtöl, Auður fór í Kastljós.

Næstu skref. Rætt er að hitta hóp þeirra sem greiddu atkvæði á móti aðildinni og eiga við þau samtal. Mikilvægt sé að fá frá þeim efnisleg atriði varðandi starfsemina sem þau hafa áhyggjur af og vilja standa vörð um. Til þess að halda umræðu sem málefnalegastri væri gott að hafa fámenna fundi með jöfnum fjölda fulltrúa ólíkra sjónarmiða. Stefnt á að halda fund í næstu viku.

Unnsteinn væri til í að taka málstofu á Hinsegin dögum um skilgreiningar og jafnvel að ræða það hvort S78 eigi að fúnkera öðruvísi stjórnsýslulega.

2.Vefstjórn

Ákveðið var að stofna admin­aðgang að heimasíðunni sem fylgja myndi skrifstofunni, til viðbótar við þá einstaklingsaðganga sem þegar eru til.

3.Hugrakkasti riddarinn

Teiknimyndin um Hugrakkasta riddarann verður sett inn á vef, youtube­rás, “boostað” á Facebook á næstu dögum.

4.Fyrirspurn forsetaframbjóðanda

Fyrirspurn barst frá samkynhneigðum einstaklingi sem er í forsetaframboði. Ekki var samþykkt að láta undirskriftablöð fyrir hann liggja frammi, á grundvelli jafnræðis.

5.Opna í dagskrárriti Hinsegin daga

Þema Hinsegin daga í ár er “sagan”. Opna S78 þarf að vera tilbúin fyrir 15. maí. Samþykkt er þríþætt framlag:
–Umfjöllun um Íslensk­lesbíska / lesbísku söguna innan samtakanna, leitað til Írisar Ellenberger
–Inntaka félaganna: Stuttir kaflar um inntöku tví­, pan­ og eikynhneigðra (sjá afmælisrit); Trans (Ugla); og Intersex (Kitty).
–Stutt umfjöllun um einhvern af burðarliðunum í núverandi starfi S78, t.d. fræðsluna

6.Fjármálafundur

Fjármálafundur er á dagskrá föstudaginn 22. apríl.

Fundi slitið 13:10.

Leave a Reply