Viðstödd eru: Bjarndís, Hannes, Hrönn, Jóhannes, Leifur, Sveinn, Vera, Sigríður Ösp (áheyrnarfulltrúi félagaráðs)
Fundargerð ritar: Vera Illugadóttir
Fundur settur: 15:42.
- Samþykkt fundargerðar síðasta stjórnarfundar
Stjórn fer yfir fundargerð síðasta stjórnarfundar og er hún samþykkt.
- Samtökin ’78 á Hinsegin dögum
Búið er að opna fyrir umsóknir í gleðigöngupott Hinsegin daga. Ákveða þarf hvernig þátttöku þeirra verður háttað í ár og hver skilaboðin verða. Stjórn ákveður að þema Samtakanna í göngunni í ár verði samstaða með trans fólki. Einnig er ákveðið að auglýsa eftir sjálfboðaliðum til að taka þátt í undirbúningi gönguatriðis.
- Hinsegin Vesturland
Hugmynd er uppi um að Samtökin ’78 sendi hóp á Hinsegin Vesturland, 27.-28. júní. Stjórn ræðir það og aðrar hinsegin hátíðir sumarsins. Einnig ætla fulltrúar Samtakanna á Budapest Pride. Ákveðið er að deila ákalli Budapest Pride um alþjóðlega þáttöku í göngu þeirra á samfélagsmiðlum Samtakanna.
- Reykjavíkurmaraþon
Stjórn telur mikilvægt að byrja sem fyrst að kynna fjáröflun Samtakanna ’78 í Reykjavíkurmaraþoni á samfélagsmiðlum.
- Önnur mál
Jóhannes veltir fyrir sér hlutverki Samtakanna ’78 og Íslands í breyttri heimsmynd. Hann stingur upp á að Samtökin deili reynslu sinni af t.d. fjáröflun með baráttufólki úti í heimi. Stjórn ræðir þetta og alþjóðastarf á víðum grundvelli.
Fundi slitið: 16:25.