Skip to main content
FundargerðirStjórn

6. Stjórnarfundur 2016

By 20. október, 2016mars 13th, 2020No Comments

Fundinn sátu: Unnsteinn Jóhannsson, varaformaður – UJ. Benedikt Traustason, gjaldkeri – BT. Álfur Birkir Bjarnason, meðstjórnandi – ÁBB. Guðmunda Smári Veigarsdóttir, meðstjórnandi – GSV. Í gegnum Skype María Helga Guðmundsdóttir, formaður – MHG.

Einnig sat fundinn Sólveig Rós Áheyrnarfulltrúi og fræðslustýra – SR

Mánudaginn 20. Október 2016 var haldinn fundur stjórnar Samtakanna ‘78 í húsnæði samtakanna að Suðurgötu 3 í Reykjavík.
Fundargerð ritaði Álfur Birkir Bjarnason, meðstjórnandi.

Dagskrá:
1. Fundargerðir síðustu funda
2. Vikan sem var
3. Vikan framundan

Fundur settur 9:46

2. Vikan sem var

Fræðslustýra fór með hinsegin fræðslu í FG og fer í fyrramálið í þjónustumiðstöð Árbæjar. Fræðslustýra enn að fara yfir bókhaldið vegna rukkana fyrir fræðslur.

BT, MHG og Framkvæmdastjóri hittu Gerðu, nýjan bókara. Hana vantar gögn frá Guðrúnu, fráfarandi Bókara, og mun þurfa að bóka meirihluta þessa árs.
Framkvæmdstjóri, ÁBB, MHG og fræðslustýra héldu fund með frambjóðendum á mánudaginn. Þangað mættu fulltrúar allra flokka nema Þjóðfylkingar og Flokks fólksins. Við vorum beðin um að endurtaka leikinn í vor (mars – maí. Staðan athuguð í febrúar).
Nýbúið er að stofna hinsegin ungmennahóp á Selfossi og er hann í viðræðum við Pakkhúsið, ungmennahús á Selfossi, um aðstöðu og utanumhald. Þau fengu styrk og stefna á að senda Samtökunum ‘78 formlega beiðni um ráðgjöf.
ÁBB sat fund lagabreytinganefndar. Marion Lerner var skipuð formaður nefndarinnar. Nefndin hefur ákveðið að skila fullunnum drögum að lagabreytingatillögum í janúar, halda umræðufund, vinna drögin áfram og skila til stjórnar seint í febrúar. Lagabreytinganefnd samþykkti að halda áfram vinnu sinni eftir komandi aðalfund og fara þá yfir lögin eftir fundinn.

Vikan framundan.

BT á fund við fráfarandi bókara í dag.

BT hittir „Að eldast hinsegin“ hópinn í næstu viku.

Stjórn þarf að yfirfara gögn fyrir ráðningu framkvæmdastýru.

Budget fyrir ungliðahalloweenparty þri 1. nóv: Samþykkt að rukka ekki inn en óska eftir upplýsingum frá Haffa Haff og setja fram kostnaðaráætlun í samræmi við það.

Vinnutilhögun framkvæmdastýru eftir 1. nóv

MHG leggur til að fræðslustýra verði í 80% starfi (40% fræðsla, 40% framkvæmdastýruaðstoð) og framkvæmdasjóri starfi 50% og fái greitt fyrir vinnu að Hinsegin handbók sem samsvarar 10% starfshlutfalli vegna gildandi samnings við stjórn. Framkvæmdastýra og fræðslustýra munu samræma dagbækur svo engin skerðing verði á opnunartíma skrifstofu.

Ráðningarferlið

Enginn í stjórn hefur íhugað að sækja um stöðu framkvæmdastýru og því mega allir stjórnarmeðlimir hafa aðgang að ráðningargögnum.

Mannauðsráðgjafar: Vala Jónsdóttir getur ekki aðstoðað okkur en Ragnheiður Stefánsdóttir er búin að lýsa sig tilbúna til að vera með.

MHG tók saman gögnin síðan síðast og óskar eftir yfirlestri frá stjórn. Framkvæmdastjóri þarf að fara yfir verklýsinguna. MHG mun biðja Ragnheiði að yfirfara gögnin þar að auki.

Samþykkt er að auglýs starfið í Fréttablaðinu og á Facebook. ÁBB heldur utan um auglýsinguna.

SR leitar til Sigurðar Júlíusar Vara áheyrnarfulltrúa Trúnaðarráðs um að taka við hlutverki áheyrnarfulltrúa þegar ráðningar eru ræddar.

Laun Hrefnu vegna ungliðastarfs

Styrkurinn frá Reykjavíkurborg vegna ungliðastarfsins dugar aðeins fyrir launum Hrefnu út október. Því vantar tveggja mánaða brú til að klára þetta almanaksár.

Samþykkt er að brúa laun Hrefnu út nóvember og endurskoða fjárhagsstöðuna þá vegna þess að við höfum ekki yfirsýn í dag fyrir lengra tímabil.

María kveður 10:50

Erindi til stjórnar:

Q-félagið vill fá að geyma dý
ran búnað í læstum skáp á Suðurgötunni. Við höfum ekkert á móti því að geyma það hér en við getum ekki tekið ábyrgð og eigum ekki læstar hirslur. Skoðum það betur.

Magnús Gests vill gera hinseginsögusafn í fatahengi. Bókum fund með henni og ræðum það betur.

Önnur mál

Rætt er um þörfina á öryggiskerfi og viðraður sá möguleiki að hafa talnalás á húsinu frekar en lyklalás.

Fundargerðir fyrstu fjögurra funda samþykktar.

Fundi slitið 11:04

Leave a Reply