Skip to main content
FundargerðirStjórn

9. Stjórnarfundur 2018

By 19. október, 2018apríl 29th, 2020No Comments

Mætt: María Helga Guðmundsdóttir (formaður), Marion Lerner (meðstjórnandi), Sigurður Júlíus Guðmundsson (gjaldkeri), Daníel E. Arnarson (framkvæmdastjóri), Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir (alþjóðafulltrúi) og Unnsteinn Jóhannsson (varaformaður).

Fundur haldinn að Suðurgötu 3
Fundargerð ritar Daníel E. Arnarsson

Fundur settur: 16:11

1. Samþykkt fundargerðar 8. fundar

Fundargerð samþykkt

2. Félagsfundur í nóvember

Fundurinn verður haldinn 10. nóvember. Félagsfundur fer yfir stefnur frá stjórn og trúnaðarráði, ásamt því að skipa kjörnefnd fyrir aðalfund sem fram fer í mars 2019. Eftir formlega fundardagskrá mun stjórn standa fyrir teiti

3. Drög að fjárhagsáætlun 2019

Gjaldkeri fer yfir fjárhagsáætlunina 2019 og kynnir fyrir stjórn. Stjórn vísar áætluninni til félagsfundar í nóvember

4. Formannsembættið

Á síðasta aðalfundi var formannsembættið rætt og þá mögulega hvort að tilefni væri til að gera breytingar á embættinu og þá með breytingum á félagslögum. Umræður meðal stjórnarmanna.

5. Aktivistaskólinn

Samþykkt að fresta málinu fram á næsta ár.

6. Ráðgjafaþjónusta

Stjórn samþykkir að bjóða ráðgjöfum á fund, mögulega næsta stjórnarfund, til að ræða framtíð ráðgjafarinnar í ljósi bættrar rekstrarstöðu og aukinna umsvifa.

7. Útleiga á sal og önnur hugsanleg nýting

Gjaldkeri vill fara yfir innkomu og kostnað varðandi útleiguna. Áætlanir og sjóðstreymi benda til þess að útleigum fari fækkandi og vill gjaldkeri athuga hvort að þær standi undir sér.

8. Önnur mál

Möguleiki og vilji til að halda fjáröflunarskemmtun við byrjun næsta árs

Fundi slitið 17.55