Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, veitti Samtökunum ’78 fræðslu- og vísindaviðurkenningu sína á aðalfundi Siðmenntar um síðustu helgi. Viðurkenningin var veitt fyrir vinnustofur samtakanna í gagnræðu, sem hefur verið mikilvægt verkefni í starfsemi okkar undanfarin ár.

Gagnræða er í stuttu máli öll tjáning sem miðar að því að draga úr áhrifum skaðlegrar og hatursfullrar orðræðu á samfélag og einstaklinga. Hún veitir fólki verkfæri til að taka þátt í umræðu á meðvitaðan og uppbyggilegan hátt.
Það er með mikilli gleði og þakklæti sem stjórn og starfsfólk Samtakanna ’78 tekur við viðurkenningunni úr hendi stjórnar Siðmenntar. Viðurkenningin gefur okkur byr undir báða vængi og hvetur okkur til áframhaldandi dáða.
Það er von Samtakanna ’78 að gagnræðan nái enn víðar og verði enn útbreiddari en hún er í dag. Við notum jafnframt tækifærið til að benda á vinnustofurnar sem fara fram síðar í mars og einnig í apríl. Skráning fer fram hér: https://samtokin78.is/gagnraeda1/
Einnig bendum við á að við bjóðum upp á námskeið fyrir fyrirtæki, starfsstaði, félagasamtök og aðra áhugasama hópa.



