Skip to main content
FundargerðirTrúnaðarráð

1/2 2017 Fimmti fundur trúnaðarráðs 2016-2017

By 1. febrúar, 2017maí 24th, 2020No Comments

Trúnaðarráð Samtakanna '78

Starfsárið 2016 – 2017

5. fundur

Mættir: Alda, Anita, Dýrleif, Embla, Lotta, Bryndís, Brynjar og Þórhildur

Fundur settur 18.10

1.mál – Fatahengi á PINK Masquerade

Kannaður áhugi á að trúnaðarráð manni fatahengið á PINK ballinu í Iðnó 11.febrúar og að peningurinn sem safnast renni óskiptur til Samtakanna ‘78 og fari jafnvel í að borga veigar og skemmtiatriði fyrir fyrirpartýið fyrir ballið. Þórhildur býður sig fram í fatahengið, vantar minnst 3 í viðbót með henni.

2.mál – Dagskrá eftir Samtakamáttinn/Fyrirpartý

Trúnaðarráð ætlar að sjá um smá ‘pizzapartý’ á suðurgötunni beint eftir Samtakamáttinn og þangað til fyrirpartýið byrjar. Fólk sem hefur lyst á pizzu leggur pening í púkk og það verður svo pöntuð pizza fyrir mannskapinn.

Alda tekur það að sér að hafa samband við veitingastaði til að kanna möguleika á hópafslátt fyrir fólk sem kemur af samtakamættinum og langar ekki í pizzu.

Svo er áætlað fyrirpartý á Suðurgötunni frá 20.00 (í beinu framhaldi af pizzapartýinu)

Trúnaðarráð sér um partýið (sjoppu, uppsetningu, tiltekt etc.)

Verið er að kanna möguleika á skemmtiatriðum fyrir partýið. Trúnaðarráð reiknar með að hafa fría bollu á meðan birgðir endast. Planið er að borga fyrirpartýið með hluta af peningnum sem safnast úr fatahenginu á ballinu.

Leitast eftir sjálfboðaliðum á Aðaltorginu, ekki bara úr trúnó.

3.mál – Lagabreytingar

Brynjar lagði fyrir ráðið tillögur að nýjum lögum er varða trúnaðarráð sem á að leggja fyrir á næsta aðalfundi.

Fundi slitið 19.27

Leave a Reply