Fundi stýrir: Leifur Örn Gunnarsson
Fundargerð ritar: Vera Illugadóttir
Fundur settur: 17:36.
- Starfsfólk fundarins
Bjarndís Helga Tómasdóttir formaður Samtakanna ‘78 setur fundinn, og tilnefnir Leif Örn Gunnarsson í hlutverk fundarstjóra og Veru Illugadóttur í hlutverk ritara.
- Lögmæti fundarins staðfest
Félagsfund skal boða skriflega með að minnsta kosti viku fyrirvara, og var það gert á viðburðavef félagsins 13. maí ásamt því að fundurinn var auglýstur á samfélagsmiðlum félagsins sama dag. Á fundinum voru fleiri en fimmtán einstaklingar þegar hann var settur.
- Staða fræðslu í nútíð og framtíð
Kári Garðarsson framkvæmdastjóri Samtakanna ‘78 fer yfir stöðu í fræðslumálum Samtakanna í nútíð sem og stefnu í fræðslumálum til framtíðar.
- Saga fræðslu Samtakanna ‘78
Sveinn Kjartansson stjórnarmaður í Samtökunum segir í stuttu máli frá upphafi fræðsluerinda Samtakanna og kynnir pallborð um sögu fræðslumála. Í pallborðinu sitja Ragnhildur Sverrisdóttir, fyrsta konan í stjórn Samtakanna, Sara Dögg, fyrsti launaði fræðslufulltrúinn, og Andrea Rói, núverandi fræðari hjá Samtökunum.
- Önnur mál
Bjarndís formaður þakkar fyrir góðar pallborðsumræður, þakkar fundargestum fyrir komuna og vekur athygli á veitingum sem eru í boði.
Fundi slitið: 18:32.