Aðalfundur Samtakanna ’78

6. mars, 2026 kl. 17:00

Framboð og fundargögn

Hér geturðu boðið þig fram í stjórn, tilnefnt einstakling í stjórn og svo skoðað þau sem hafa nú þegar boðið sig fram. Einnig geturðu sent inn lagabreytingatillögur og umsókn um hagsmunaðild. Öll framboð og tillögur birtast svo hér þegar frestur er liðinn.

Senda inn lagabreytingatillöguSenda inn framboðÁrsskýrsla 204-2025Ársreikningur 2024-2025

Dagskrá aðalfundar og önnur gögn

Í ár munu Samtökin ’78 fagna aðalfundi sínum af miklum krafti. Hefðbundin aðalfundardagskrá fer fram föstudaginn 6. mars. Dagskrá aðalfundar má nálgast hér að neðan. Aðalfundurinn 2026 verður haldinn í Iðnó.

Dagskrá aðalfundarSkráning á aðalfundVerklagsreglur kjörfnefndar

Spurt & Svarað

Hvað er aðalfundur?

Aðalfundur er æðsta vald og stofnun Samtakanna ’78, með öðrum orðum þá er aðalfundur sá vettvangur þar sem allt er ákveðið í Samtökunum ’78. Á aðalfundi er kjörin stjórn og félagaráð, ásamt því að fara yfir fjárhag félagsins og ræða öll mál. Einnig er samþykktum (lögum) félagsins aðeins breytt á aðalfundi.

Hvenær er aðalfundur?

Föstudaginn 6. mars, 2026 klukkan 17.

Hvernig kýs ég?

Í ár verður hægt að kjósa rafrænt og á pappír. Til að kjósa rafrænt þarft þú að vera með rafræn skilríki. Mikilvægt er að skrá sig í félagið og greiða félagsgjöld fyrir 4. mars kl. 17 (tveir sólarhringar fyrir aðalfund) því þá lokar kjörskrá. Einungis þau sem eru á kjörskrá geta kosið.

Á þessum vef verður linkur á kosningasíðu, en hægt er að kjósa frá því að kjörskrá lokar og alveg fram að dagskrárlið um kosningar á fundinum sjálfum. Ef þú kemst ekki á fundinn þá er öruggast að greiða atkvæði áður en fundur hefst.

Til að komast á kjörskrá:

  1. Skrá sig í félagið fyrir 4. mars kl. 17
  2. Greiða félagsgjöld fyrir 4. mars kl. 17

Til að kjósa rafrænt:

  1. Hægt er að kjósa frá því að kjörskrá lokar
  2. Smellir á tengil sem má finna efst á þessari síðu (birtist þegar nær dregur fundi)
  3. Kýst eftir leiðbeiningum á kosningavef

Athugið! Mikilvægt er að fylgja leiðbeiningum á kosningavef sem opnar um leið og kjörskrá lokar.

Til að kjósa á pappír:

  1. Mætir með skilríki og félagsskírteini.
  2. Kosning er opin á skrifstofu Samtakanna ’78 fimmtudag 5.mars kl. 13-16 og föstudag 6. mars milli 13-15.
  3. Einnig er hægt að kjósa á pappír rétt fyrir aðalfund í Iðnó milli kl. 15.30-17.15

Hvar er aðalfundur?

Aðalfundurinn 6. mars nk. verður haldinn í Iðnó

Er skylda að mæta á aðalfund?

Vissulega er það ekki lagaleg skylda en mögulega lýðræðisleg. Mjög gott er að mæta og eru allir félagar innilega hvattir til að sækja aðalfund.

Má hver sem er mæta á aðalfund?

Nei, því miður ekki. Aðalfundur er vettvangur fyrir skráða félaga Samtakanna ’78 sem hafa greitt félagsgjöld. Ef þú ert ekki viss um hvort þú sért skráður félagi, endilega hafðu samband á skrifstofa@samtokin78.is

Hvenær þarf ég að greiða félagsgjöld?

Fyrir fundinn. Félagsgjöld voru send út í heimabanka þinn 12. janúar 2026. Til að kjósa þarftu að greiða áður en kjörskrá lokar, sem er miðvikudaginn 4. mars kl. 17.

Ég er í félaginu en ekki með félagsskírteini. Af hverju ekki?

Félagsskírteini Samtakanna ’78 eru rafræn. Líklegasta skýringin á því að þú ert ekki með félagsskírteini er sú að mögulega er tölvupóstfang þitt ekki uppfært í félagatali Samtakanna ’78. Þú getur reddað því hér.

Ég er með reikning í heimabanka en vil greiða annað gjald. Er það mögulegt?

Algjörlega. Fjögur gjöld eru í boði og er það félaga algjörlega frjálst að velja hvað sem er. Uppfærðu félagsgjöldin þín hér.

Félaganúmerin eru komin aftur, mig langar í mitt gamla númer. Er það hægt?

Svo sannarlega er það hægt, svo lengi sem einhver er ekki komin/nn/ð með það númer. En þetta græjarðu hér.

Ég kemst ekki á fundinn, get ég kosið fyrr?

Heldur betur! Rafræn kosning opnar miðvikudaginn 4.mars og stendur til föstudags 6.mars kl. 17. og hægt verður að kjósa á pappír á skrifstofu Samtakanna fimmtudaginn 5. mars milli klukkan 13 og 16 & föstudaginn 6.mars milli klukkan 13 og 15.00. Ef þú ert að koma lengra að verðum við með í boði að kjósa í Iðnó milli 15.30 og 17, rétt fyrir aðalfund. Athugaðu að þú þarft að hafa skráð þig í félagið og greitt fyrir 4.mars kl. 17 til að hafa kosningarétt.

Hvernig er aðgengi í Iðnó?

Hjólastólaaðgengi: Aðalinngangur Iðnó er nægilega breiður fyrir flestar tegundir hjólastóla. Athugið að takki er til að opna aðalinnganginn, en hann getur verið stífur og dyrnar eru þungar. Samtökin halda viðburði bæði í hátíðarsal og Sunnusal (smærri salur á efri hæð), og eru þeir báðir rúmgóðir. Lyfta er á aðra hæð og er hún nægileg kraftmikil fyrir flestar tegundir stóla (nánar í myndbandi).

Hljóðvist: Hljóðvist í Iðnó er til fyrirmyndar í hátíðarsalnum og með ágætum í Sunnusal. Í andrými Iðnó er hljóðvist ekki sérstök en mikið er um umhverfishljóð og kliður ef fjöldi er mikill. Þau sem nota heyrnatæki geta notað þau án vandkvæða. Þegar mörg eru í Iðnó þá getur skynáreiti verið töluvert, sérstaklega í Sunnusal og við inngang en í hátíðarsal er rýmið það stórt að hljóð dreifist vel og því ekki nema á mjög fjölmennum viðburðum þar sem skynáreiti getur orðið mikið.

Salerni: Salerni á neðri hæð er aðgengilegt. Þegar Samtökin ’78 halda viðburði í Iðnó þá merkjum við salerni svo þau séu ekki kynjuð.

Þarftu táknmálstúlkun? Í ár verður sá háttur á að þau sem óska eftir táknmálstúlk hafa samband sjálf við Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra. Samskiptamiðstöð sendir svo reikning beint á Samtökin ’78.