Skip to main content
search

Aðalfundur Samtakanna ’78

8. mars, 2024 kl. 17:00

Framboð og fundargögn

Hér geturðu boðið þig fram í stjórn, tilnefnt einstakling í stjórn og svo skoðað þau sem hafa nú þegar boðið sig fram. Einnig geturðu sent inn lagabreytingatillögur og umsókn um hagsmunaðild. Öll framboð og tillögur birtast svo hér þegar frestur er liðinn.

Skoða framboðSkoða lagabreytingatillögurÁrsskýrsla 2023-2024Ársreikningur 2023Fjárhagsáætlun 2024

Dagskrá aðalfundar og önnur gögn

Í ár munu Samtökin ’78 fagna aðalfundi sínum af miklum krafti. Hefðbundin aðalfundardagskrá fer fram föstudaginn 8. mars. Dagskrá aðalfundar má nálgast hér að neðan. Aðalfundurinn 2024 verður haldinn í Hátíðarsal Iðnó.

Dagskrá aðalfundarSkráning á aðalfundVerklagsreglur kjörfnefndar

Spurt & Svarað

Hvað er aðalfundur?

Aðalfundur er æðsta vald og stofnun Samtakanna ’78, með öðrum orðum þá er aðalfundur sá vettvangur þar sem allt er ákveðið í Samtökunum ’78. Á aðalfundi er kjörin stjórn og félagaráð, ásamt því að fara yfir fjárhag félagsins og ræða öll mál. Einnig er samþykktum (lögum) félagsins aðeins breytt á aðalfundi.

Hvenær er aðalfundur?

Föstudaginn 8. mars, 2024 klukkan 17.

Hvernig kýs ég?

Í ár verður allt rafrænt! Mikilvægt er að skrá sig í félagið og greiða félagsgjöld fyrir 6. mars kl. 17 (tveir sólarhringar fyrir aðalfund) því þá lokar kjörskrá. Einungis þau sem eru á kjörskrá geta kosið.

Á þessum vef verður linkur á kosningasíðu, en hægt er að kjósa frá því að kjörskrá lokar og alveg fram að dagskrárlið um kosningar á fundinum sjálfum. Ef þú kemst ekki á fundinn þá er öruggast að greiða atkvæði áður en fundur hefst.

Til að komast á kjörskrá:

  1. Skrá sig í félagið fyrir 6. mars kl. 17
  2. Greiða félagsgjöld fyrir 6. mars kl. 17

Til að kjósa:

  1. Hægt er að kjósa frá því að kjörskrá lokar
  2. Smellir á tengil sem má finna efst á þessari síðu (birtist þegar nær dregur fundi)
  3. Kýst eftir leiðbeiningum á kosningavef

Athugið! Mikilvægt er að fylgja leiðbeiningum á kosningavef sem opnar um leið og kjörskrá lokar.

Hvar er aðalfundur?

Aðalfundurinn 8. mars nk. verður haldinn í Iðnó, Vonarstræti 3, 101 Reykjavík (kort) nánar tiltekið í Hátíðarsalnum.

Er skylda að mæta á aðalfund?

Vissulega er það ekki lagaleg skylda en mögulega lýðræðisleg. Mjög gott er að mæta og eru allir félagar innilega hvattir til að sækja aðalfund.

Má hver sem er mæta á aðalfund?

Nei, því miður ekki. Aðalfundur er vettvangur fyrir skráða félaga Samtakanna ’78 sem hafa greitt félagsgjöld. Ef þú ert ekki viss um hvort þú sért skráður félagi, endilega hafðu samband á skrifstofa@samtokin78.is

Hvenær þarf ég að greiða félagsgjöld?

Fyrir fundinn. Félagsgjöld voru send út í heimabanka þinn 25. janúar 2024. Gott er að greiða áður en kjörskrá lokar, en hún lokar nokkrum dögum fyrir aðalfund en verður auglýst síðar.

Ég er í félaginu en ekki með félagsskírteini. Af hverju ekki?

Félagsskírteini Samtakanna ’78 eru rafræn. Líklegasta skýringin á því að þú ert ekki með félagsskírteini er sú að mögulega er tölvupóstfang þitt ekki uppfært í félagatali Samtakanna ’78. Þú getur reddað því hér.

Ég er með reikning í heimabanka en vil greiða annað gjald. Er það mögulegt?

Algjörlega. Þrjú gjöld eru í boði og er það félaga algjörlega frjálst að velja hvað sem er. Uppfærðu félagsgjöldin þín hér.

Félaganúmerin eru komin aftur, mig langar í mitt gamla númer. Er það hægt?

Svo sannarlega er það hægt, svo lengi sem einhver er ekki komin/nn/ð með það númer. En þetta græjarðu hér.

Ég kemst ekki á fundinn, get ég kosið fyrr?

Heldur betur! Rafræn kosning og allt kynnt aðeins síðar.