Skip to main content
Fréttir

Að loknum aðalfundi

Aðalfundur Samtakanna ’78 fór fram að Laugavegi 3 fyrr í dag, 9. mars. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. Fundarstjóri var Þorvaldur Kristinsson og ritari Sigurlaug Brynja Arngrímsdóttir.

Guðmundur Helgason, fráfarandi formaður stjórnar Samtakanna ’78, fór yfir starfsskýrslu ársins 2012-2013 og að því loknu kynnti Gunnlaugur Bragi, gjaldkeri, áritaða reikninga starfsársins sem hlutu staðfestingu aðalfundar.

Á fundinum var kjörið í öll embætti í stjórn félagsins, en þau eru sjö talsins, auk þess sem tíu fulltrúar voru kjörnir í trúnaðarráð. Stjórn og trúnaðarráð Samtakanna ’78 2013-2014 eru sem hér segir:

Stjórn S’78 2013-2014:


 

  • Formaður: Anna Pála Sverrisdóttir
  • Varaformaður: Sigurður Júlíus Guðmundsson
  • Gjaldkeri: Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson
  • Ritari: Svandís Anna Sigurðardóttir
  • Meðstjórnendur: Fríða Agnarsdóttir, Guðrún Arna Kristjánsdóttir og Örn Danival Kristjánsson

Trúnaðarráð S’78 2013-2014:


 

  •  Andri Sævar Sigríksson
  • Arna Arinbjarnardóttir
  • Auður Halldórsdóttir
  • Auður Magndís
  • Birna Hrönn Björnsdóttir
  • Brynjólfur Magnússon
  • Gunnar Helgi Guðjónsson
  • Karitas Hrund Harðardóttir
  • Karla Dögg Karlsdóttir
  • Sverrir Jónsson

 

 

Leave a Reply