Skip to main content
Fréttir

Aðstandendur transfólks athugið!

By 29. júlí, 2014No Comments

 

Næsti fundur hjá hópi foreldra og aðstandenda transfólks verður miðvikudaginn 30. júlí  kl. 20.00 í húsnæði Samtakanna ’78, Laugavegi 3, 4. hæð. Foreldrar barna í kynáttunarvanda eru sérstaklega velkomnir. 

Það er alltaf gott að hitta aðra sem eru í svipuðum aðstæðum og maður sjálfur og ræða málin opinskátt. Þarna gefst tækifæri á að spyrja spurninga og deila með öðrum upplifunum, jákvæðum og neikvæðum. Eins er þetta gott tækifæri til þess að afla sér upplýsinga um efni sem ekki alltaf er aðgengilegt.

Frekari upplýsingar veitir Sigríður Birna í síma 694 8313.

Leave a Reply