1869
Fyrstu heildstæðu hegningarlög tóku gildi á Íslandi að fyrirmynd danskra laga. Þar var m.a. lögð refsing við mökum tveggja einstaklinga af sama kyni án tillits til samþykkis þeirra og aldurs. Lagagreinin, §178, tók jafnt til kynmaka tveggja einstaklinga af sama kyni og maka við dýr og hljóðaði svo: „Samræði gegn náttúrulegu eðli varðar betrunarhúsvinnu.“
1924
Guðmundur Sigurjónsson Hofdal dæmdur af Bæjarþingi Reykjavíkur í 8 mánaða betrunarhúsvinnu fyrir brot á 178. grein hegningarlaganna. Guðmundur, frægur íþróttamaður og glímukappi, sem meðal annars tók þátt í Ólympíuleikunum í London 1908, (þriðji frá vinstri á mynd). Hann játaði fúslega fyrir rétti að hafa átt „holdlegt samræði við aðra karla“ síðustu 15–18 ár. Guðmundi var veitt uppreisn æru með konungsbréfi 8. ágúst 1935, fimm árum eftir að hliðstæð ákvæði hegningarlaga voru felld úr gildi í Danmörku.
1940
Alþingi samþykkti ný hegningarlög og felldi þar með úr gildi þau ákvæði eldri hegningarlaga þar sem lögð var refsing við mökum tveggja einstaklinga af sama kyni án tillits til aldurs þeirra eða samþykkis. Ísland varð annað Norðurlanda til að afnema refsingar við mökum samkynhneigðra án tillits til aldurs þeirra eða samþykkis.
1940
1985
Þingsályktunartillaga um afnám misréttis gagnvart samkynhneigðu fólki var borin fram á Alþingi dagaði uppi í allsherjarnefnd
1992
1992
Alþingi samþykkti róttækar breytingar á ákvæðum kaflans um skírlífisbrot í hegningarlögum frá 1940 og nefnist hann nú Kynferðisbrot. Samræðisaldur miðaðist þar með við 14 ár – kynmök einstaklinga, 14 ára og eldri, voru þá með öðrum orðum refsilaus ef þau voru að vilja beggja (aldursmörkin urðu 15 ár árið 2007). Enginn munur var nú lengur gerður á aðilum brots eftir kyni og öll mismunun gagnvart samkynhneigðum varðandi samræðisaldur úr sögunni
1996
1996
Alþingi breytti greinum í almennum hegningarlögum, sem fjalla um mismunun vegna þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða eða kynferðis, og var þá aukið við orðunum „vegna kynhneigðar“. Þar með var refsivert að neita fólki um vöru eða þjónustu vegna kynhneigðar þess eða ráðast opinberlega með háði, rógi, smánun eða ógnun á mann eða hóp manna vegna kynhneigðar hans.
2000
Alþingi samþykkti breytingar á lögum um staðfesta samvist. Ættleiðing stjúpbarna (stjúpættleiðing) var heimiluð en eftir stóð það ákvæði sem meinaði pari í staðfestri samvist að ættleiða barn sem er báðum óskylt (frumættleiðing). Eftir stóðu þau ákvæði laganna frá 1996 sem meinuðu konum í staðfestri samvist rétt til tæknifrjóvgunar. Réttur útlendinga sem eru búsettir á Íslandi var rýmkaður. Sem fyrr gat einungis borgaralegur vígslumaður, en ekki kirkjulegur, staðfest samvist fólks af sama kyni.
2003–2004
2006
Lögum breytt svo fjölskylduréttur yrði jafn að öllu leyti án tillits til kynhneigðar. Frumvarpið veitti samkynhneigðum sama rétt og öðrum þegnum til að skrá óvígða sambúð á Hagstofu, allan sama rétt til ættleiðinga, og lesbíum í staðfestri samvist eða óvígðri sambúð sama rétt og öðrum konum til tæknifrjóvgunar á opinberum sjúkrastofnunum.
2008
2010
Almennum hjúskaparlögum breytt þannig að aðilar hjúskapar eru ekki tilgreindir eftir kyni heldur er talað um tvo einstaklinga í stað karls og konu. Þar með voru lög um staðfesta samvist frá 1996 úr sögunni.
2012
2014
Þingsályktun um skipun nefndar um málefni hinsegin fólks var samþykkt á Alþingi 15. janúar 2014. Nefndin var skipuð 14. apríl 2014 með þátttöku hagsmunaaðila, sérfræðinga og stjórnmálaflokka. Hlutverk nefndarinnar er að gera tillögur að samþættri aðgerðaáætlun um bætta stöðu hinsegin fólks í samfélaginu.
2014
Breytingar á hegningarlögum – 29. Janúar 2014 voru samþykktar breytingar á hegningarlögum, en það hafði meðal annars í för með sér að „kynvitund“ var bætt inn í upptalningu sem þýðir að í fyrsta skipti á Íslandi nýtur transfólk einhverskonar refsiverndar á Íslandi.