Á fimmtudag, 26. mars, gengst heilbrigðisráðuneyti fyrir fundi um staðgöngumæðrun á Grand Hótel. Fundurinn hefst kl. 13 og er Vilhjálmur Árnason prófessor og stjórnarformaður Siðfræðistofnunar HÍ fundarstjóri.
Dagskrá fundarins er með eftirfarandi hætti:
Kl. 13.00 Setning
Kl. 13.05 Ávarp Álfhildar Ingadóttur heilbrigðisráðherra
Kl. 13.20 Guðríður Þorsteinsdóttir, sviðsstjóri lögfræðisviðs heilbrigðisráðuneytis og formaður vinnuhóps um staðgöngumæðrun kynnir áfangaskýrslu vinnuhópsins.
Kl. 13.30 Er tímabært að heimila staðgöngumæðrun og þá með hvaða takmörkunum? Til máls taka: Reynir Tómas Geirsson, prófessor og yfirlæknir á kvennadeild Landspítala; Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar; Ragnheiður Elín Árnadóttir, alþingismaður; Sólveig Anna Bóasdóttir dósent í guðfræðilegri siðfræði við HÍ og Guðný Gústafsdóttir, kynjafræðingur og talskona Femínistafélags íslands
Kl. 14:40 Kaffihlé
Kl.15.00 Pallborðsumræður með framsögumönnum
Kl.16.00 Almennar umræður