Skip to main content
Fréttir

Allir sitja á gægjum

By 8. febrúar, 2005No Comments

„Það sitja allir, á þessum smástöðum úti á landi og líka í smástaðnum Reykjavík, á gægjum. Fylgjast með. Til dæmis ef einhver er á labbi með mér á götu, þá er viðbúið að hann verði álitinn hommi. Þetta er nú einu sinni svona! Svo mjög verð ég var við þetta að mér er meinilla við að labba með fólki úti á götu. Ég var með Benna bróður mínum í Klúbbnum um daginn. Þá rauk náungi á mig og sagði: ?Helvítis svínið þitt, þú er búinn að pikka þér einn sætan.? Ég spurði við hvað hann ætti. Þá benti hann á Benna og sagði: ?Þykir þér þessi sætur, ertu ánægður með að fá hann í rúmið með þér?? Ég sagðist ekki hafa hugsað það langt með hann. Aftur á móti væri þetta mitt mál, ekki hans. Ef hann ætlaði að gerast riddari á hvítum hesti og bjarga Benna, þá ætti hann frekar að snúa sér til hans og vara hann við.“

Hörður Torfason í Samúel 1975.

Leave a Reply