Bergrún Andradóttir hefur verið ráðin sem móttökuritari á skrifstofu Samtakanna ’78. Hún er bókmenntafræðingur og meistaranemi í menningarfræðum. Meðal þess sem fellur undir starfssvið móttökuritara er bókun ráðgjafaviðtala og fræðsluerinda, reikningshald, símsvörun og móttaka almennra erinda. Bergrún hefur þegar hafið störf.