Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata, var í maí kjörin forseti borgarstjórnar og varð þannig fyrsta trans konan til að gegna því embætti. Embættið er hæsta staða sem trans manneskja hefur gegnt hér á landi og er mögulega hæsta kjörna staða sem nokkur trans manneskja hefur gegnt.
Alexandra mun taka yfir instagram reikningin Samtakanna (@samtokin78) þriðjudaginn 15. júní en borgarstjórn fundar þann dag og fáum við því tækifæri til að fylgjast með Alexöndru í hlutverki forseta borgarstjórnar.
Mynd með færslunni er í eigu Reykjavíkurborgar.