Strákafélagið Styrmir stendur fyrir alþjóðlegu fótboltamóti samkynhneigðra á Íslandi um páskana. Dagskrá mótsins og allr tengdra viðburða má finna hér. Af þessu tilefni höfum við fengið Pál Óskar í lið með okkur og ætlum að standa fyrir trylltu djammi á Rúbín þann 11. apríl næstkomandi.
Það eru ALLIR velkomnir á ballið en miðar verða einungis seldir í forsölu á midi.is. Við verðum með nafnalista á staðnum en enga miðasölu. Við hvetjum ykkur því til að festa kaup á miða strax, enda ljóst að það verður hvergi meira stuð um Páskana!