Skip to main content
Fréttir

FÉLAGSFUNDUR

By 2. febrúar, 2009No Comments

Stjórn Samtakanna ´78 boðar til félagsfundar 14. febrúar kl. 14:00.

 

Dagskrá fundarins er með eftirfarandi hætti:

 

1.       Tillögur lagabreytinga- og stefnuskrárnefndar kynntar 2.       Kosning í uppstillingarnefnd

3.       Önnur mál

 

Hlutverk uppstillingarnefndar samkvæmt félagslögum er að lýsa eftir og vinna að því að framboð berist til kjörs stjórnar svo og til setu í trúnaðarráði fyrir aðalfund félagsins sem í ár verður haldinn í Regnbogasalnum að Laugavegi 3. þann 14. mars kl. 14:00.

 

Þeir félagar sem áhuga hafa á því að leggja félaginu lið með starfskröftum sínum eru sérstaklega hvattir til þess að setja sig í samband við nefndina. Starfssemi félagsins má kynna sér á heimasíðunni www.samtokin78.is Um hlutverk stjórnar og trúnaðarráðs má lesa á undirsíðunni à Um félagið à Félagslög og fundarsköp. Rétt er að vekja athygli á því að öllum félögum er frjálst að bjóða fram lista til stjórnarkjörs og skal hann hafa borist skrifstofu félagsins hálfum mánuði fyrir auglýstan aðalfund. Framboð til setu í trúnaðarráði skulu einnig hafa borist skrifstofu félagsins hálfum mánuði fyrir aðalfund, en til ráðsins er kosið einstaklingskosningu.

Leave a Reply