[English below]
Skrifstofa Samtakanna ‘78 er nú flutt úr kjallaranum á Suðurgötu 3 og upp á 4. hæð að Tjarnargötu 4, en sú bygging er í eigu Happdrættis Háskóla Íslands. Nýja skrifstofurýmið er hálf hæð, sem skiptist í þrjú herbergi og eldhúskrók auk salernis. Skrifstofurýmið að Tjarnargötu 4 býður því upp á það að starfsfólk Samtakanna getur breitt úr sér og notið sólar í sumar. Húsnæðið er útbúið nýrri lyftu en aðgengisupplýsingar verða settar á vefinn von bráðar.
Flutningarnir koma aðallega til vegna tveggja þátta.
Skrifstofa Samtakanna ‘78 hefur verið í kjallaranum á Suðurgötu 3 síðustu fjögur ár, þar sem hafa verið ýmist 6-7 starfsmenn eftir tímabilum og þröngt á þingi. Kjallarinn verður nú að geymslurými eins og hann var hugsaður þegar Samtökin festu kaup á húsinu árið 2014. Flutningar skrifstofunnar er því mikil bót fyrir starfsfólk skrifstofunnar, sem sum hafa starfað í kjallaranum í hátt í 4 ár.
Eins og þau sem þekkja samtökin vita þá er mikil eftirspurn eftir ráðgjafaþjónustu sem og félagslegu rými fyrir stuðningsfundi, viðburði, klúbba og félagsmiðstöð og þá var tekin sú ákvörðun að leigja rými að Suðurgötu 8, til þess að geta mætt eftirspurn eftir ráðgjöf og fundaraðstöðu betur. Nú er svo komið að leigusamningurinn þar er á enda og því var brugðið á það ráð að gera leigusamning við HHÍ og færa þannig skrifstofuna úr kjallaranum og upp á fjórðu hæð. Ráðgjöfin verður á báðum stöðum, Suðurgötu 3 og Tjarnargötu 4 og við biðjum skjólstæðinga um að skoða tölvupóstinn sinn vel.
Rétt er að taka fram að allir félagslegir viðburðir og stuðningshópar verða ennþá í Regnbogasalnum okkar að Suðurgötu 3, þar sem fullt aðgengi er.
//
The office of Samtökin ‘78 has now moved from the basement of Suðurgata 3 to the 4th floor at Tjarnargata 4, a building owned by the University of Iceland’s Lottery. The new office space is half a floor, divided into three rooms, a kitchen, and a toilet. Tjarnargata 4 has a new elevator, and accessibility information will be posted on the website soon. The basement on Suðurgata will now be used as storage space, as it was initially intended when Samtökin purchased the building in 2014. The counseling services will now be in both places, in Suðurgata 3 and Tjarnargata 4 with Sigga Birna.
The move is mainly due to two factors. The office of Samtökin ‘78 has been in the basement at Suðurgata 3 for the past four years, where there have been 6-7 employees for the whole time, and it has been cramped. As those who know the organization are aware of, there is high demand for counseling services and social space for support meetings, events, clubs, and the youth center. Our headquarters have been filled to capacity for the last few years, in relation to the growthspur of the organization. Samtökin therefore decided about two years ago to rent space at Suðurgata 8 to better meet the demand for counseling and meeting facilities, to be able to have two counseling sessions at once. Now that Suðurgata 8’s rental contract has come to an end, it was decided to move the office from the basement to the fourth floor. This is a great change, as some of Samtökin’s employees have been working in the basement for up to 4 years now.
It is worth noting that all social events and support groups will still be held in our space at Suðurgata 3, where there is full access.