Skip to main content
Fréttir

FUNDUR HJÁ FAS

FUNDUR HJÁ FAS

Stuðningsfundur foreldra og aðstandenda samkynhneigðra verður miðvikudaginn 8. mars í félagsmiðstöð Samtakanna ’78, Laugavegi 3, 4. hæð.

Umræðuefni: Skólinn og samkynhneigð.

Fundurinn hefst kl. 20:30.

Ef fólk hefur þörf fyrir rólega stund og spjall fyrir fundinn þá er alltaf einhver til staðar frá kl. 20:00.

Markmið okkar er að hittast og deila hvert með öðru reynslu okkar, styrk og vonum. Við leggjum rækt við okkur sjálf og teljum að með því séum við betur aflögufær til að vera bakhjarlar við ástvini okkar.

Við vinnum að fræðslu bæði með opnum fundum og einnig innan okkar hóps. Markmið okkar er að efla umræðu í okkar nánasta umhverfi og út í samfélagið til að auka skilning og þekkingu á samkynhneigð sem er fjölskyldumál.

-stjórn FAS

Leave a Reply